133. löggjafarþing — 1. fundur,  2. okt. 2006.

afbrigði um dagskrármál.

[16:17]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum þar sem samkomulag er milli þingflokka um annan ræðutíma í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra næstkomandi þriðjudagskvöld en kveðið er á um í 2. mgr. 73. gr. þingskapa, þ.e. að umferðir verði þrjár, 12 mínútur, 6 mínútur og 5 mínútur en forsætisráðherra hafi 20 mínútur til framsögu. Skoðast afbrigðin samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Enn fremur þarf að leita afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgrein 3. gr. þingskapa um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að hv. þm. Helgi Hjörvar geti fengið sæti sem hentar fyrir þann búnað sem hann þarf að hafa í þingsalnum meðan þingfundur stendur. Þetta er sæti 32 fyrir hv. þm. Helga Hjörvar.

Enn fremur hefur orðið samkomulag milli forseta og formanna þingflokka að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salnum fyrir formennina, en þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.