133. löggjafarþing — 2. fundur,  3. okt. 2006.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:50]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Góðir Íslendingar. Já, þær hafa ýmsar öfugmælavísurnar hrotið af vörum okkar þingmanna hér í þessum ræðustóli í kvöld en öfugmælavísurnar hjá forsætisráðherra, þær mættu nú að ósekju standa betur í hljóðstafnum að mínu mati. Ráðherrann kvað ríkisstjórnina munu leggja áherslu á umhverfisvernd nú sem fyrr. Hann ætlar bæði að nýta og njóta, og að sjálfsögðu af fullri virðingu fyrir náttúrunni.

Mér finnst að ráðherrann hefði átt að láta þetta ósagt þó ekki væri nema svona rétt á meðan þjóðin jafnar sig á þeim myndum sem hún hefur fyrir augunum í fjölmiðlum þessa dagana, rétt á meðan verið er að eyða dýrmætu gróðurlendi og ómetanlegum náttúruperlum í ævintýralandi óbyggðanna norðan Vatnajökuls. Þessi ríkisstjórn leggur ekki áherslu á umhverfisvernd og hefur aldrei gert. Þessi ríkisstjórn leggur hins vegar áherslu á það að laða til sín erlenda fjárfesta á sviði þungaiðnaðar og hún leggur líka áherslu á hagsmuni orkufyrirtækjanna en hagsmunir þessara aðila munu seint fara saman með hagsmunum náttúru- og umhverfisverndar. En auðvitað ber að þakka það sem vel er gert, það ber að þakka áform um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs en jafnframt þurfum við að vera á varðbergi. Það verður að tryggja að vel verði búið að Vatnajökulsþjóðgarði, umsjón og stjórnsýslu hans. Ég spyr: Fáum við t.d. öfluga Þjóðgarðsstofnun Íslands þegar Vatnajökulsþjóðgarður verður stofnaður þar sem allir þjóðgarðarnir okkar geta verið saman, fengið sess ásamt friðlýstum svæðum? Ég leyfi mér að efast um það. Við skulum fylgjast vel með og sjá hvernig til tekst.

Í ræðu sinni vék forsætisráðherra að frammistöðu okkar í loftslagsmálum, framtaki okkar á því sviði og nefndi viðurkenningar frá alþjóðlegum samtökum fyrir framtak í loftslagsmálum. Ég hef ekki heyrt um þær og ekki gat hæstv. forsætisráðherra þeirra samtaka sem eiga að hafa veitt okkur viðurkenninguna, en sannarlega eru loftslagsbreytingar af manna völdum eitt það áleitnasta svið sem við höfum við að glíma þessa stundina, málasvið sem engri þjóð sem skuldbatt sig í Kyoto 1997 er stætt á að láta sér í léttu rúmi liggja.

Hver er staða okkar í dag og hvert stefnir? Við Íslendingar losum í dag sem nemur 12,1 tonni af gróðurhúsalofttegundum á mann á ári. Allar álbræðslurnar sem stjórnvöld hafa nú komið á koppinn og eru í pípunum — þegar þær verða orðnar að veruleika hækkar losunin í 19,5 tonn á mann. Hin löndin í Evrópu, löndin í Evrópusambandinu, losa 11 tonn á mann. Við stefnum að því að verða við hliðina á Bandaríkjamönnum sem eru heimsmeistarar og losa 24 tonn á mann. Forsætisráðherra stærir sig af því hversu oft Íslendingar lenda í fyrsta sæti í alþjóðlegum samanburði en hvað með þennan samanburð, hæstv. forsætisráðherra, ertu stoltur af honum? Ég er það ekki og ég er viss um að þjóðin okkar er ekki stolt af því að vera í fremstu röð þeirra sem losa mengandi gróðurhúsalofttegundir.

Góðir Íslendingar. Við þurfum breytingar og við breytum í vor. Þegar kosið verður til Alþingis í vor kjósum við fyrst og síðast annars konar atvinnustefnu, atvinnustefnu sem stenst mælikvarða sjálfbærrar þróunar, atvinnustefnu sem byggir á sterku menntakerfi, kraftmikilli vísindastarfsemi og blómlegu menningar- og listalífi. Krafturinn í háskólunum okkar verður virkjaður sem aldrei fyrr, vísindastarfsemi verður leyst úr viðjum fjárskorts og listirnar verða viðurkenndar sem einn af máttarstólpum atvinnulífsins.