133. löggjafarþing — 2. fundur,  3. okt. 2006.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:54]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Gott kvöld, góðir landsmenn. Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins flutti hér fyrr í kvöld mikla lofrullu um flokk sinn, landsbyggðina og annað það sem íslenskt er. Þessi formaður Framsóknarflokksins skrifaði grein sem birtist árið 2004 í Borgfirðingabók, ársriti Sögufélags Borgarfjarðar. Í þessari grein er að finna mjög margar merkilegar yfirlýsingar þar sem segja má að framsóknarúlfurinn kasti af sér sauðagærunni og komi til dyranna eins og hann er klæddur. Þarna lýsir einn helsti hugmyndafræðingur Framsóknarflokksins, flokks sem hingað til hefur haldið fram að hann ætti rætur sínar að rekja á landsbyggðinni, framtíðarsýn sinni í byggðamálum á Íslandi.

Núverandi formaður Framsóknar, sem gegnir í dag embætti byggðamálaráðherra, talar skýrt í þessari grein og segir svo orðrétt:

„Íslenska sveita- og þorpasamfélagið er úr sögunni. Í stað þess er hér risið nokkurs konar borgríki, samfélag sem ber mjög ólík einkenni og lýtur allt öðrum lögmálum. Íslendingar standa nú í róttækri samfélagsbreytingu sem sést á breytingum í byggðamálum, í búferlaþróun frá landsbyggðinni til Suðvesturlands. Samfélagið hefur breyst — frá því að vera keðja sjálfstæðra héraða, það er félags-, atvinnu- og þjónustusvæða umhverfis landið, og yfir í að verða borgríki með miðju á Suðvesturlandi og útstöðvar annars staðar.“

Tilvitnun lýkur hér, en í framhaldi af þessu spáir formaður Framsóknar því að um 90% landsmanna muni búa í borgríkinu hans um öndverðan næsta áratug og ekki er annað að sjá á skrifum hans en að hann sé mjög sáttur við þessa þróun.

Góðir landsmenn. Ég hygg að í þessari litlu grein núverandi formanns Framsóknarflokksins kristallist sú stefna sem núverandi ríkisstjórn hefur unnið að leynt og ljóst á allt of löngum valdaferli sínum. Þessi ríkisstjórn hefur allan tímann unnið með það að leiðarljósi að byggja íslenskt borgríki á suðvesturhorninu, flytja íbúa landsbyggðarinnar hreppaflutningum suður, með örfáum undantekningum þó eins og á Eyjafjarðarsvæðinu og á Miðausturlandi. Restin af landsbyggðinni má éta það sem úti frýs. Náttúruauðlindir sem stóðu undir uppbyggingu og mannlífi í sjávarbyggðum umhverfis landið hafa verið hirtar af fólkinu og því hefur verið meinaður aðgangur að þeim. Veikar sjávarbyggðir hafa svo aftur veikt þjónustugreinar og landbúnaðinn og þannig hefur leiðin bara legið niður á við. Það má nefna þessar byggðir allt í kringum landið, fólk veit hvaða byggðir ég er að tala um.

Nú síðast hefur ríkisstjórnin svo með aðgerðum sínum skapað gríðarlegt þensluástand í þjóðfélaginu. Fólkið, og einkum og sér í lagi þeir yngri, flýr af landsbyggðinni og inn í borgríki Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Þenslan kallar á vinnuafl. Til að mæta eftirspurninni hafa flóðgáttir erlends vinnuafls verið opnaðar. Það gerðist hér á Alþingi síðastliðið vor með samþykki meiri hluta en hörðum mótmælum okkar í Frjálslynda flokknum.

Það hefur heldur betur komið á daginn að viðvörunarorð okkar áttu við rök að styðjast. Erlent vinnuafl hefur flætt inn í landið sem aldrei fyrr á örfáum mánuðum. Við teljum að við Íslendingar séum engan veginn undirbúnir til þess að taka á móti þessum fjölda sem mun bara aukast og aukast og aukast. Þetta fólk er engir farandverkamenn eins og forsætisráðherra nefndi hér í ræðu sinni. Stærstur parturinn af þessu fólki er kominn til að vera, þannig verður það.

Ágætu landsmenn. Hvernig viljum við að Ísland þróist á næstu árum, hvert er okkar gildismat? Ætlum við að halda áfram að láta landsbyggðina drabbast niður og byggja upp borgríkið í staðinn? Ætlum við að láta tvo hópa búa í þessu landi, þá sem eru fæddir hér á landi, eru vel menntaðir, búa flestir í borgríkinu, og svo erlent vinnuafl sem lifir og starfar í borgríkinu og úti í því sem eftir verður af landsbyggðinni? Ætlum við að halda áfram með stóriðjustefnuna? Ætlum við að horfa aðgerðalaus upp á árangursleysi fiskveiðistjórnarinnar, stjórnkerfis sem í dag rændi Grímseyinga helmingi af lífsviðurværi sínu? Skyldi nú ekki ríkisstjórnin, og kannski sérstaklega þingmenn Norðausturkjördæmis, sem sitja fyrir ríkisstjórnarflokkana, vera stolt af þessu kerfi í dag?

Er það ekki skylda okkar sem tökum við þessu landi að byggja það til sjávar og sveita? Ætlum við að halda einkennum okkar sem sjálfstæð þjóð sem býr í fallegu og hreinu landi? Eða er borgríkið sem Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa reist með ráðum og dáð á valdatíð sinni það sem koma skal? Kjósendur þurfa meðal annars að taka afstöðu til þessara spurninga að vori.