133. löggjafarþing — 7. fundur,  5. okt. 2006.

vaxandi ójöfnuður á Íslandi.

[10:20]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Rannsókn þarf strax á því hvaða breytingar hafa orðið á efnahagslegu valdi í krafti gífurlegra eigna- og tekjutilfærslna í þjóðfélaginu og hvernig sporna megi við miklum neikvæðum áhrifum þróunar á tekjuskiptinguna og ójöfnuðinn í landinu sem hæglega getur leitt til alvarlegra stéttaátaka, sundrungar og stéttaskiptingar í þjóðfélaginu. Stjórnarstefnan hefur sannarlega mulið undir efnafólk en hlunnfarið þá fátæku.

Fjármálaráðherra hefur ítrekað staðfest á Alþingi að skattbyrði lágtekju- og meðaltekjufólks hefur þrefaldast í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem er auðvitað hrein hneisa á sama tíma og skattbyrði ofurlaunafólksins minnkar. Ráðist er af fullri hörku að skattleysismörkunum sem mestu skipta fyrir lágtekju- meðaltekjufólk og lífeyrisþega en skattleysismörkin ættu nú að vera 40–50 þús. kr. hærri á mánuði ef þau hefðu haldið raungildi sínu frá 1995.

Andstæðan er ofurlaunafólkið sem hefur allt upp í 22 millj. kr. mánaðartekjur og stór hluti þeirra tekna ber 10% skatt meðan fátækt fólk greiðir 37% í skatt.

Ég kalla eftir því að lífeyrisgreiðslur öryrkja og aldraðra beri ekki hærri skatt en fjármagnstekjur ofurlaunafólksins. Ég átel núverandi ríkisstjórn harðlega fyrir hraksmánarlega skerðingu á lífeyrisgreiðslum barna og á vaxtabótum. Þeir eru að slíta í sundur öryggisnet velferðarkerfisins.

Ég segi, virðulegi forseti, burt með þessa ríkisstjórn ójafnaðar úr valdastólunum. Hún hefur gert nóg af sér í íslensku samfélagi. Gert nóg af sér þannig að fátækt fólk, fólk með meðaltekjur stendur verr nú en þegar þessi ríkisstjórn tók við. Þjóðfélagið þarfnast þess að jafnaðarstefnan verði leidd til öndvegis í íslensku samfélagi.