133. löggjafarþing — 7. fundur,  5. okt. 2006.

vaxandi ójöfnuður á Íslandi.

[10:22]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Það eru tvær breytingar sem hafa orðið á síðustu 10–15 árum og hér eru til umræðu. Annars vegar er hraðari og meiri aukning á ráðstöfunartekjum alls almennings á Íslandi en í löndunum í kringum okkur, jöfn aukning á launatekjum yfir alla hópa.

Hin breytingin eru auknar fjármagnstekjur. Fjármagnstekjur sem nánast voru ekki til fyrir þetta tímabil. Þær tekjur hafa sannarlega ekki breyst jafnt. Þær eru langsamlega mestar hjá þeim sem eru í efstu 5%. Hvers vegna gerist þetta? Jú, það gerist einfaldlega vegna þess að það eru ekki allir sem stunda viðskipti. Það eru ekki allir sem fjárfesta. Það eru ekki allir sem spara.

Spurningin er síðan sú: Eru þetta varanlegar breytingar? Munu fjármagnstekjurnar vera varanlegar í framtíðinni eins og þær hafa verið núna síðustu 2–3 ár? Þetta vitum við ekki. En auðvitað vonum við að þær muni aukast áfram eins og þær hafa verið að gera því það skilar sér í þjóðarbúið.

En hvaðan kemur breytingin? Eru þetta hlutir sem eru að gerast hér innan lands? Eru þetta hlutir sem eru að gerast vegna þess að Íslendingar stunda viðskipti erlendis? Að mjög stórum hluta til er þetta vegna þess að Íslendingar stunda í meiri mæli en áður viðskipti erlendis. 70% af veltu og verðmæti og viðskiptum í Kauphöllinni eru vegna viðskipta sem Íslendingar stunda erlendis.

Er þetta slæmt? Á að gera eitthvað við þessu? Getum við gert eitthvað við þessu? Og ef við ætlum að gera eitthvað við þessu, munum við þá ekki bara skaða okkur? Ef við ætlum að fara að hækka fjármagnstekjuskattinn og reyna að auka jöfnuðinn með því, þá er hætt við að þessi tekjulind ríkisins sem hefur hjálpað okkur að styðja velferðarkerfið muni þurrkast upp. Þessir peningar munu fara annað. Þessir aðilar munu stunda viðskipti sín annars staðar. Þá er betur hugsað fyrir fram um það að skaða ekki mjólkurkúna áður en farið er að eiga við hlutina.