133. löggjafarþing — 7. fundur,  5. okt. 2006.

vaxandi ójöfnuður á Íslandi.

[10:29]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Ég hélt að það væri ekki lengur deilt um að ójöfnuður hefði aukist. En svo virðist vera að ýmsir þingmenn í Framsóknarflokknum geri sér ekki fyllilega grein fyrir því. En viðkomandi þingmaður sem talaði hér á undan mér ætti að kynna sér svörin sem hafa komið frá fjármálaráðuneytinu um Gini-stuðulinn sem sýna ótvírætt að ójöfnuður hefur aukist gríðarlega.

Einnig hefur hagfræðingurinn Þorvaldur Gylfason gert ítarlega grein fyrir þessu í blaðagreinum og sömuleiðis prófessorinn Stefán Ólafsson. En hann hefur sýnt fram á að 1% þeirra landsmanna sem hafa hæstu tekjurnar greiða sama hlutfall af sköttum og þeir sem eru í lægstu tekjuhópunum. Um 13%. Þetta eru staðreyndirnar og við eigum að tala um þær eins og þær eru.

Ég heyrði að það var nú ekki alveg samhljómur með þeim félögum í Framsóknarflokknum sem töluðu. Það örlaði á samviskubiti hjá félagsmálaráðherranum Magnúsi Stefánssyni. En mér virtist sem þingmaðurinn sem talaði hér á undan væri forhertur í að halda áfram þessum ójöfnuði.

Ég vil bara spyrja framsóknarmenn: Hvað vilja þeir ganga langt? Og einnig sjálfstæðismenn: Vilja menn ganga lengra í þessum ójöfnuði? Telja þeir að íslenskt samfélag verði betra við að við förum enn lengra og aukum hann meira? Ég held að það sé mjög mikilvægt.

Hér var einnig gerð athugasemd við orðanotkun. Ég vil minna sjálfstæðismenn á að þeir hafa lagt þá í einelti sem hafa verið að benda á þessar staðreyndir um íslenskt samfélag og þróun þess. Ég vil minnast orða okkar ágæta dómsmálaráðherra sem skrifaði á heimasíðu sína að þeir sem hefðu vakið athygli á þessu væru í einhverjum þríhyrningi. Það hafa verið settar fram kenningar um (Forseti hringir.) að þessi þríhyrningur væri hvorki meira né minna en samsæri öryrkja, pólitískra afla sem væru andsnúin (Forseti hringir.) þessari þróun og vildu koma höggi á ríkisstjórnina.

En ég vona bara að fólk kynni sér staðreyndirnar, frú forseti.