fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Já, ég tók svo djúpt í árinni að tala um að hugmyndir Frjálslyndra og annarra stjórnarandstöðuflokka geta farið mjög langt með að rústa íslenskum sjávarútvegi. Ef við förum til ársins 2003 í þá umræðu sem þá átti sér stað í aðdraganda þeirra kosninga þá voru það stjórnarandstöðuflokkarnir sem töpuðu á síðustu vikunum í þeirri umræðu vegna þess að hugmyndir þeirra eru óraunhæfar og til að mynda var stefna Samfylkingarinnar mismunandi eftir landshlutum. Það er náttúrlega ekki boðlegt að undirstöðuatvinnugrein landsmanna sem skilar þjóðarbúinu og ríkissjóði tugum milljarða í tekjur á hverju ári þurfi að búa við það óöryggi, að slík stefna geti mögulega orðið ofan á eftir næstu kosningar. Hagsmunir fjölda fólks eru í húfi, starfsmanna landvinnslu og útgerðar og við þurfum að standa vörð um atvinnuréttindi þessa fólks.