fjárlög 2007.
Frú forseti. Hv. þingmaður minntist í fyrra andsvari sínu á gróðann af Kárahnjúkavirkjun og framkvæmdunum fyrir austan. Mér vitanlega eru þeir ekki farnir að skila miklu í þjóðarbúið sem slíkt. En úr því að þetta er svona arðvænt hvers vegna er þá ekki hægt að fá upplýsingar um orkuverðið, um hið raunverulega sem þarna er að gerast? Hvers vegna er það leyndarmál? Hvers vegna má ekki reikna arðsemismatið og áhættumatið af hlutlausum aðilum þannig að fáum ekki bara fulltrúa Sjálfstæðisflokksins til þess að þylja upp fullyrðingar? Þegar leitað er eftir staðfestingu á þessum upplýsingum, nei, þá er það leyndarmál. (EOK: Ég styð þig í ...) Já, gott að heyra frá hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni enda er honum ekki allt illa gefið. Ég held að við ættum einmitt að vera sammála um að fara ofan í arðsemismat (Gripið fram í.) á þessum stóriðjuframkvæmdum. Ég tala nú ekki um þegar við erum komin með svo stóran hluta af atvinnulífinu, svo stóran hluta af orkunni bundna í einni atvinnugrein, í áli, er þá ekki kominn tími til að segja stopp? Því ég held að það sé mat allra annarra en framsóknarmanna að haldi menn nú áfram að auka enn álbræðslurnar þá stefni menn í verulega áhættu og einhæfni í atvinnulífinu, ef enn á að ráðstafa auknum hluta af orkulindunum til einnar framleiðslu. Það held ég að við séum öll að verða sammála um að sé stórhættulegt nema framsóknarmennirnir, þeir keyra áfram sína stóriðjustefnu (Forseti hringir.) og það verður bara að hafa það. En það er nauðsynlegt að segja stopp (Forseti hringir.) í stóriðjumálunum.