fjárlög 2007.
Virðulegi forseti. Ég var búinn að svara þessu. Við vorum búnir að ræða þetta hér áðan, ég og hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson. Ég var búinn að gera grein fyrir því. Ég var búinn að fullyrða það og ætla að fullyrða það aftur því það liggur fyrir eftir yfirmanni Vegagerðarinnar á Vestfjörðum að þetta hafði engin áhrif. Þetta seinkaði vegaframkvæmdunum á Vestfjörðum ekki um eina mínútu. Það er bara ósatt ef menn halda slíku fram. Það tafði ekki vegagerðina um einn einasta sentimetra. Þetta er bara tilbúningur. Það hafði engin áhrif. Við munum koma þessu öllu í gagnið núna um næstu mánaðamót. Það lá fyrir að við gætum það ekki.
Það hefur verið mjög mikið álag á verkfræðiskrifstofur Íslands á undanförnum árum, allt of mikið álag. Svo mikið að Vegagerðin hefur ekki komið því við að nota þá peninga sem hún á. Vonandi verður mikil breyting hér á þegar dregur úr þeim ofhita sem sannarlega hefur verið í þjóðfélaginu. Við þurfum mjög á vegagerð að halda. Við erum einmitt með hinu sterka ríkisvaldi og hinni sterku stöðu þess að gera það kleift að fara með miklu meiri peninga á undanförnum árum og á næstu árum í vegagerð en nokkurn tíma áður í sögu lýðveldisins. Við erum með yfir 10 milljarða til þessara hluta og það mun frekar standa á verklegum undirbúningi en peningum. Það liggur fyrir.
Við höfum því miður búið hér til reglur um umhverfismat sem tefja þetta mjög mikið. Mjög þvældar og vitlausar reglur sem við höfum látið þvæla okkur í að samþykkja, illu heilli. Það eru þær sem tefja okkur. Ekki peningar.