fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Ég heyri að hv. þingmaður á erfitt með að fóta sig í þessari umræðu. Enda er það svo að við erum að fjalla hér um trúlega eitt það glæsilegasta fjárlagafrumvarp sem hefur verið lagt fram hér á þingi. Ríkissjóður er nánast skuldlaus. Við erum að stórefla heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfið með auknum framlögum til þeirra þátta. Það er óumdeilt. Ég held að menn geti nú ekki neitað því. Við erum að auka framlögin til barnabóta um 25% sem mun sérstaklega koma lágtekju- og millitekjufólki til góða. Við erum að lækka skatta.
Þannig að það er ýmislegt sem má telja hér upp. Síðast en ekki síst erum við að hækka skattleysismörkin um 12 þús. kr. úr 78 þús. upp í 90 þús. Svo kemur hv. þingmaður hér upp bara eins og heimurinn sé að farast.
Þetta er náttúrlega ekki viðunandi, sérstaklega ef við lítum til fortíðar kratanna í Samfylkingunni árið 1991 til 1995 þegar Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra. Átti Íslandsmet í að skerða barnabætur á sínum tíma (EMS: Ekki trúir þú þessu, drengur?) þegar það var tekjusamdráttur sem bitnaði hvað harðast á lágtekjufólki.
Við getum talað líka um kjör námsmanna 1991 til 1995. Þá var endurgreiðslubyrði námslána 7%. Það voru kratarnir sem voru að skattpína íslenska námsmenn eins og Katrínu Júlíusdóttur er náttúrlega vel kunnugt um. Þá var endurgreiðslubyrðin 7%. Í dag er hún 3,75%. Þannig að af 5 millj. er námsmaður í dag að borga 187 þús. en nærri því tvöfalt hærri upphæð á árinu 1991 til 1995. Þannig var nú velferðarstjórn kratanna. Þannig tókst þeim nú upp í málefnum námsmanna. Þannig að það er eðlilegt að hv. þingmaður ergist hér og missi nærri því stjórn á skapi sínu við þá umræðu sem er um þetta sólskinsfrumvarp til fjárlaga fyrir árið 2007.