fjárlög 2007.
Frú forseti. Ég geri mjög fastlega ráð fyrir að við munum að minnsta kosti sameinast um tillögur hvað varðar fjárheimildir sem eru í samræmi við þær velferðartillögur sem við höfum flutt. Það stendur í greinargerð þeirrar tillögu að stjórnarandstaðan muni, þegar kemur að afgreiðslu fjárlaga, takast á við að setja þau útgjöld sem samfara yrðu verulegum kjarabótum til aldraðra og öryrkja inn í forsendur fjárlagaafgreiðslunnar, sem breytingartillögu þá væntanlega við fjárlagafrumvarpið.
Varðandi þá huggun hv. þingmanns að þótt erlendar skuldir séu miklar og viðskiptahalli þá muni það nú allt saman lagast þegar kemur að því að álið fer að streyma úr landi, þá verð ég að hryggja hv. þingmann með því að þetta er enn ein goðsögnin í þessari umræðu. Veruleikinn er sá að nettóarðsemisáhrif álvera í íslenska hagkerfinu þegar eigandinn er erlendur eru merkilega lítil. Aðeins 30% af umsvifum fyrirtækjanna staðnæmist í íslenska hagkerfinu. 30%. Innan við þriðjungur, segir OECD. Margir aðrir útreikningar vísa í það sama. 15% í rafmagn, (Forseti hringir.) 10% í laun og 5% í aðra þætti.