133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[15:05]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Um kl. 3.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um mögulega leyniþjónustustarfsemi á vegum stjórnvalda. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. dómsmálaráðherra Björn Bjarnason verður til andsvara Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í eina og hálfa klukkustund.