133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

Aðgerðir til að jafna flutningskostnað.

[15:21]
Hlusta

Árni Steinar Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Það er gott að stjórnarmeirihlutinn viðurkennir að hafa ekki komið kosningaloforði í verk. Ber að virða það. En ég spyr þá hvort búast megi við að fram komi tillögur sem verða settar í framkvæmd nú á þessu ári eða í byrjun næsta árs sem væru þá á grunni þeirrar skýrslu sem fram kom um málið og væri til mikilla hagsbóta fyrir öll landsbyggðarfyrirtæki, þjónustufyrirtæki og framleiðendur sem þar starfa.