4. fsp.
Virðulegi forseti. Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn 10. október er á morgun og hæstv. ríkisstjórn hefur sett geðheilbrigðismál í öndvegi í stjórnarsáttmála. Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra:
Hvað líður aðgerðaráætlun og stefnumótun í geðheilbrigðismálum sem fyrirrennari hennar skuldbatt sig til þess að við færum í við undirritun á Helsinki-sáttmálanum í fyrra um aðgerðir til 2010, þ.e. næstu fjögur árin?
Ég spyr hér um þrjá þætti:
1. Hvað líður stefnumótun í að efla geðheilsu almennings? Þjóðarhagur kallar á að það verði gert.
2. Hvað líður stefnumótun í nálgunum vegna geðraskana? 27% þjóðar glíma við geðraskanir á hverjum tíma eða fjórði hver maður.
3. Í þriðja lagi nefni ég geðfatlaða en sem betur fer, og ég fagna því, var stefnumörkun í þeim málaflokki kynnt í morgun, fín vinna, þar sem var verið að ráðstafa milljarðinum frá Símanum og hálfum milljarði úr Framkvæmdasjóði fatlaðra í fimm ára verkefni um búsetumál. En geðfötluðum dugar ekki búsetan þó að sjálfstæð búseta sé mikilvæg. Það þarf þjónustu og hvernig er ástandið í geðheilbrigðisþjónustunni? Ég ætla að nefna hérna nokkur dæmi.
Á annað hundrað bíða þjónustu geðsviðs Reykjalundar og það er yfir sjö mánaða bið og sumir komast aldrei að. Það eru börn sem bíða eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar. Biðin þar er á annað ár. Í ljósi þessa, ég gæti nefnt mun fleiri atriði en tími minn er að renna út, þá spyr ég hæstv. ráðherra: Hvar er stefnumörkunin og aðgerðaráætlunin í málaflokknum sem lofað var fyrir okkar hönd í Helsinki 2005?