133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

5. fsp.

[15:49]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra er ekki bara á harðahlaupum undan símaborðinu í menntamálaráðuneytinu. Hún er á harðahlaupum undan því að svara með óyggjandi hætti hvort samkomulagið við Fjölmennt, sem ákveðið var á ríkisstjórnarfundi fyrir tveimur árum að menntamálaráðherra ætti að leiða til lykta með öðrum fagráðherrum í ríkisstjórninni sem að málinu koma, verði gert og aukin heldur hvort eigi að tryggja Geðhjálp og Fjölmennt þær 12 milljónir sem upp á vantar. Þetta eru smáar upphæðir. Og hvort eigi að tryggja þessa fjármuni til að halda þessu mikilvæga og merkilega námi úti, þessum mikilvægu og merkilegu menntunarúrræðum fyrir okkar minnstu bræður sem hafa veikst alvarlega á geði og fá þarna nýtt tækifæri í lífi sínu. 12 milljónir vantar, hæstv. ráðherra, og það vantar að leiða málið til lykta og gera samkomulagið sem ríkisstjórnin ákvað að hæstv. menntamálaráðherra gera skyldi fyrir tveimur árum.