133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

stækkun friðlandsins í Þjórsárverum.

4. mál
[18:18]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra, Jónínu Bjartmarz, og öðrum þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni um þingmál Kolbrúnar Halldórsdóttur, Marðar Árnasonar og fleiri þingmanna í umhverfisnefnd. Ég get vel lýst því yfir að ég hlakka til að sjá niðurstöður starfshópsins, einkum ef þær fara að berast innan nokkurra vikna, og vænti þess að umhverfisráðherra greiði atkvæði með þingsályktunartillögu okkar sem þegar er ljóst að nýtur meirihlutastuðnings í þeirri nefnd sem hún fer til, nefnilega umhverfisnefndar.