sameignarfélög.
Hæstv. forseti. Þetta eru merkileg og umhugsunarverð atriði sem hv. þingmaður nefnir og er full ástæða til þess að skoða þau og ræða meira en við gerum í þessari umræðu. Ég geri ráð fyrir að nefndin muni skoða þau.
Það er rétt sem hv. þingmaður segir um byggðasamlögin. Það er einmitt markvert með þau eins og þau sameignarfélög sem ég nefndi áðan að hafi verið breytt í hlutafélög, að það er m.a. og ekki síst út af þeirri skilvirkni löggjafar síðari ára um hlutafélög og vegna ábyrgðaraðstæðna.
Um ákvæði í 31. gr. er það að segja að það leiðir í raun beint af hinni beinu, einstaklingsbundnu og ótakmörkuðu ábyrgð. Það verður að gera ráð fyrir því að í félagssamningi sé heimild til þess að erfingi leggi hlut sinn aftur inn í félagið til að halda þar áfram. Það leiðir aftur af hinni beinu ótakmörkuðu ábyrgð. Það losar aðra einstaklinga, þótt þeir séu lögerfingjar látins félagsmanns, undan þeirri skyldu að axla ábyrgð sem þeir þekkja kannski ekki til. Þeir eiga þá kost á því að fá sinn hlut greiddan út og þá leiðir að líkum að ákvæði erfðaréttar hljóta að eiga við um það hvort þeir bera skyldu til að greiða af tapi eður ei.