133. löggjafarþing — 11. fundur,  12. okt. 2006.

Kárahnjúkavirkjun og Hálslón, munnleg skýrsla iðnaðarráðherra.

[12:09]
Hlusta

Halldór Blöndal (S):

Frú forseti. Allir á Austfjörðum voru að vonast eftir lítilli og sætri 120.000 tonna álverksmiðju, sagði 8. hv. þm. Reykv. n., Kolbrún Halldórsdóttir. Mér þótti þetta sætt og fallegt hjá henni að rifja þetta upp. Er náttúrlega vísað til drauma Hjörleifs Guttormssonar þegar hann var iðnaðarráðherra.

Við munum eftir því að þegar Gunnar Thoroddsen var að beita sér fyrir Blönduvirkjun dró Hjörleifur Guttormsson lappirnar vegna þess að hann vildi virkja jökulárnar fyrir austan. Hann hugsaði sér að virkja við Eyjabakka og síðan yrði 40 kílómetra langur skurður norður alla heiði. Þetta var framtíðarsýn Hjörleifs Guttormssonar, þessa eina manns í Vinstri grænum sem verið hefur orku- og iðnaðarráðherra. Er spurning hvort ekki á að taka mark á því sem menn segja þegar þeir bera ábyrgðina frekar en eftir á. En þetta var nú hans draumur og var þó ekki búið að selja rafmagn fyrir einni einustu ljósaperu. Kommar austur þar í Hjaltastaðaþinghá voru svo ákafir að þeir voru farnir að rækta aspir fyrir kísilmálmverksmiðjuna á Reyðarfirði.

Ef við á hinn bóginn rifjum upp það sem hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði hér, fyrrverandi borgarstjóri, var t.d. athyglisvert að hún talaði um að Íslendingar skiptust í virkjanaher og verndarher. Þeir eru kannski verndarherinn sem eru búnir að standa að virkjun um alla Hellisheiði fyrir álver á Stór-Reykjavíkursvæðinu? Er það verndarherinn sem veitti ábyrgð Reykjavíkurborgar fyrir að ráðast í Kárahnjúkavirkjun? Eða er fyrrverandi borgarstjóri stikkfrí eftir hún fer út stólnum? Vill hún ekki bera ábyrgð á sínum gerðum? Er eitthvað að marka það sem hv. þingmaður segir um þessi efni? Ég tók ekki betur eftir en að frambjóðandi Samfylkingarinnar til formanns hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafi verið sá mikli virkjunarmaður Smári Geirsson.

Þó var óhjákvæmilegt að skilja ræðu hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur öðruvísi en svo að hvert einasta orð væri kinnhestur á Smára Geirsson fyrir afstöðu hans í stóriðjumálum og staðfestu hans í stóriðjumálum. Ég sé að hv. þingmaður brosir. En hún sagði áðan að sjávarbyggðunum væri að blæða út og ríkisstjórnin flýtti sér af því það væru kosningar til að ráðast í álverið.

Ef sjávarbyggðunum var að blæða út, var þá ekki ástæða til að grípa í taumana og byggja upp nýjan rekstur? Eru þetta ekki einmitt rök fyrir því að rétt var að fara í þessa virkjun? Ég held að við eigum að skilja að á bak við virkjunaráform Íslendinga fyrr og síðar, við getum farið aftur í Elliðaárnar, við getum farið hvert sem við viljum, við getum farið í Sogið, er einmitt þetta að skapa atvinnu fyrir fólkið. Það sé atvinnuskapandi. Þegar þessi flokkar sem vilja kenna sig við verkalýðshreyfingu, Vinstri grænir og Samfylking, gera lítið úr því að verið er að byggja upp atvinnu á landsbyggðinni, þá er nú langt gengið vil ég segja, ef þessa tvo flokka varðar ekkert um atvinnuna. Halda menn t.d. að Lúðvík Jósepsson, Norðfirðingur, hafi á sínum tíma lagt lítið upp úr því sem var atvinnubyggjandi? Halda menn það?

Auðvitað snúast stjórnmál landsbyggðarþingmanna um það framar öðru að tryggja fólki vinnu. Það er á bak við þessa virkjun og það er á bak við ákvarðanir okkar. Það er rangt að halda því fram að við sem viljum nýta landsins kosti séum á móti náttúruvernd. Það er fullkomlega rangt. Það er hálfbroslegt að sjá menn hreykja sér og þykjast vera meiri náttúruverndarmenn en aðrir hér í salnum. Ég veit ekki um og skal ekki um það segja hvort einhverjir aðrir hafi vakað fleiri sumarnætur en ég úti. Það má vera að það sé einhver hér inni sem það hefur gert. Ég skal ekki fara að deila um það. En ljóst er að við erum náttúruverndarmenn sem ólumst upp með náttúrunni, vorum í sveit og unnum við hafið og höfum verið úti um allar trissur.

Annað var líka eftirtektarvert. Það var afstaða þessara tveggja kvenna, hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur til skýrslu Gríms Björnssonar. Hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lagði mikið upp úr henni og sagði að henni hefði verið haldið leyndri fyrir þingmönnum. Aftur sagði hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir að við skyldum ekki gera of mikið úr skýrslunni því að það sem þar kæmi fram hefði komið fram áður.

Verst er að hv. þm. Helgi Hjörvar má ekki tala hér í þessari umræðu vegna þess að hann fékk skýrsluna í hendur haustið 2002 áður en nokkur bindandi samningur hafði verið gerður um Kárahnjúkavirkjun. Þessum hv. þingmanni var í lófa lagið að sýna borgarstjóra, hv. þm. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, skýrsluna. En það gerði hann ekki, eða hvað? Var kannski hv. þingmaður á þeim tíma búin að sjá skýrsluna? Ég sá hana ekki. En á hinn bóginn, hv. þm. Jóhann Ársælsson, ræddi ég þetta mál við þann mann sem nú er bæjarstjóri í Kópavogi um daginn og er doktor í jarðvegsfræði með tilliti til bygginga og nam á miklu jarðskjálftasvæði. Hann sagði mér að það hefði verið farið nákvæmlega í gegnum þessi atriði í þeim nefndum sem hann var í hér á Alþingi á sínum tíma. Og hann ber meira skynbragð á þetta en ýmsir aðrir.

En fyrir liggur að þegar þessi skýrsla kom í hendur hv. þm. Helga Hjörvars, þá þótti honum hún ekki merkilegri en svo, að mér skilst, að hann hefur engum sýnt hana. Það er jafnframt svolítið undarlegt ef menn eru að reyna að gera mikið úr því að skýrslan kom ekki til Alþingis. Ef sá sem skýrsluna skrifaði gerði það í sínum einkatíma, hann átti auðvitað að senda alþingismönnum skýrsluna sjálfur. (Gripið fram í: En ekki iðnaðarráðherra?) Hann sendi ekki hæstv. iðnaðarráðherra skýrsluna. Hann ætlaði hana alþingismönnum og átti þá að senda hana alþingismönnum. Það er við engan að sakast nema hann sjálfan. Ef menn skrifa vitlaust heimilisfang á bréf þá fer bréfið auðvitað ekki á réttan stað. En þetta er ekkert flókið, hv. þm. Jóhann Ársælsson.

Það var eitt annað sem mér þótti athyglisvert sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir sagði: Við vildum fara aðra leið í atvinnumálum Austfirðinga. Við hverjir? Skyldi hv. þingmaður ekki hafa sagt þingmönnum kjördæmisins í sínum flokki frá þessu, Steingrími J. Sigfússyni og Þuríði Backman? Þau hafa ekki bent á neina aðra leið sem máli skiptir í sambandi við atvinnumál Austfirðinga. Hver er sú leið? Hér talar á eftir Steingrímur J. Sigfússon. Það væri nú fróðlegt að hann gerði grein fyrir því sem flokkssystir hans sagði hér að hann hefði viljað fara aðra leið í atvinnumálum Austfirðinga. Hvar hefur örlað á því?

Ég ætla ekki að fara að rifja upp einhverja fjallagrasamjólk. En það munar ekki um þá leið sem þessi flokkur talar um vegna þess að hún er engin. Þetta eru innantóm yfirboð. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon greip fram í áðan og talaði um að ríkisstjórnin bæri ábyrgðina. Ríkisstjórnin bar ábyrgðina og brást við. En Steingrímur J. Sigfússon var á sínum tíma ráðherra. Á þeim tíma var það á stefnu ríkisstjórnarinnar að byggja álver og fara í stórvirkjanir að sjálfsögðu. En hvernig var ástandið þegar hann hrökklaðist úr ráðherrastól? Hér blasti við stórfellt atvinnuleysi. Lífskjör allra í landinu versnuðu hvert einasta ár sem hann var ráðherra. (Gripið fram í.) Hvert einasta ár sem hv. þingmaður var ráðherra versnuðu lífskjörin. (Gripið fram í.) Rólegur hv. þingmaður. Hann tapaði enda kosningum um haustið. (Gripið fram í: … frá 1988.)

Það er rétt að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins sprakk þá vegna þess að vinstri menn komu sér saman um að mynda ríkisstjórn. En þeim gekk nú ekki vel, Steingrímur. (Forseti hringir.) Það er ekki mikið sem eftir hv. þingmann liggur.