vímuefnavandinn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni fyrir að taka upp þessa umræðu. Það er mjög gott að fylgja eftir þeirri samræðu sem hefur verið úti í samfélaginu.
Við þurfum að hafa heildarsýn í málaflokknum að leiðarljósi í þeirri tiltekt og stefnumótun sem er nú að fara fram. Margt hefur verið rætt í þinginu um þessi mál, hvort sem það er lyfjaneysla í framhaldsskólum eða í fangelsum, meðferðarúrræði eða forvarnir. Ég vil leggja áherslu á unga fólkið og foreldrana í þessu stutta innleggi hér. Það sem er mikilvægast að hafa í huga er að forvarnir eru og verða lykilatriði í þessum málaflokki. Við þurfum að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í og það er einungis gert með öflugu samstarfi foreldra, skóla, sveitarfélaga og þeirra sem að málinu koma eins og ráðuneyta.
Styrking á foreldrastarfi er nauðsynleg eins og t.d. með Vímulausri æsku, að þau geti verið styrkur bakhjarl bæði í forvörnum, fræðslu og stuðningi við ungmenni og fjölskyldur þeirra í vanda. Þangað leitar fjöldi foreldra á hverjum einasta degi og hægt er að grípa inn í þau mál sem þar verða áður en þau verða mjög stór. Þar fá ungmenni stuðning og styrkingu og það sama á við um foreldrana. Við þekkjum öll hér Saman-hópinn og hann er mjög gott dæmi um hvernig við getum lagt áherslu á skýrar siðferðisreglur og mörk gagnvart börnunum okkar. Við þurfum að styrkja enn frekar foreldra í sínu mikilvæga hlutverki. Foreldrar verða að læra að segja nei börnum til góðs. Og rannsóknir hafa sýnt að því meiri samvera sem er milli foreldra og ungmenna, þá drögum við úr líkum á því að þau neyti vímuefna.
Við verðum að huga að tengslum vímuefnaneyslu og ýmiss konar hegðunarvanda eins og ofvirkni og athyglisbrests og skoða þar og meta hvort þessum krökkum er hættara en öðrum við að leiðast út í neyslu. Talsvert hefur verið hugað að þessu en við verðum að gera enn betur til þess að geta fylgt þeim krökkum eftir.
Virðulegur forseti. Það hefur orðið mikil hugarfarsbreyting hjá foreldrum vegna áfengisneyslu ungs fólks. Foreldrar kaupa ekki lengur brennivín ofan í börnin sín, nú skilja flestir að því lengur sem ungmennum er haldið frá víni þeim mun betur mun þeim farnast.