skerðing lífeyrissjóða á lífeyrisgreiðslum til öryrkja.
Hæstv. forseti. Kjör öryrkja koma okkur öllum við óháð stjórnmálaflokkum og stöðu fólks. Við Íslendingar höfum lengi státað okkur af því að eiga líklega besta lífeyrissjóðakerfi í veröldinni og horfa margar þjóðir öfundaraugum til okkar fyrir þetta frábæra kerfi, sem oft hefur verið kallað svo og réttilega. En það er svo sem ekki hafið yfir gagnrýni. Meðal annars hafa heyrst þær gagnrýnisraddir að það byggi á einokun þar sem launþegar eru skyldaðir til að vera í tilteknum lífeyrissjóði eftir starfsgreinum, eftir landsvæðum og þar fram eftir götunum, að það sé lítið lýðræði innan lífeyrissjóðanna eins og komið hefur fram í umræðunum.
Svör talsmanna lífeyrissjóðanna við þessari gagnrýni hafa á hinn bóginn verið þau að lífeyrissjóðirnir gegni samábyrgð, samábyrgð sé meginþema og lykilhlutverk í uppbyggingu lífeyrissjóðanna. En hvað er að gerast nú, virðulegi forseti? Það má segja að lífeyrissjóðirnir, með þessari ákvörðun sinni, ráðist gegn okkar minnsta bróður, hafi tekið ákvörðun um að bregðast félagslegum skyldum sínum, tekið ákvörðun um að bregðast þeirri samábyrgð sem ávallt hefur verið haldið fram sem meginröksemd fyrir skylduaðild að lífeyrissjóðum. Þess vegna, virðulegi forseti, hljótum við að spyrja, hvort lífeyrissjóðirnir ætli sér bæði að halda og sleppa. Það mun aldrei ganga upp.
Ef lífeyrissjóðirnir snúa ekki af vegferð sinni, afturkalla ekki þessa ákvörðun sína, þá hlýtur þingið að taka til endurskoðunar þá uppbyggingu og í raun þá einokun sem lífeyrissjóðirnir hafa núna hvað varðar aðild einstaklinga. Þessi vegferð er sannarlega óþolandi og vonandi að lífeyrissjóðirnir snúi af henni.