133. löggjafarþing — 13. fundur,  17. okt. 2006.

rannsóknir á meintum hlerunum – áhrif Kárahnjúkavirkjunar á efnahagslífið.

[13:34]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins og ég bið forseta forláts á því ef henni hefur ekki borist tilkynning um að ég hygðist gera það í upphafi fundar, en menn hafa mæðst í mörgu í morgun eins og forseta mun væntanlega vera kunnugt og einhver boð kannski dottið á milli skips og bryggju, ef svo má að orði komast, í önnum morgunsins.

Ég kveð mér hljóðs vegna þeirrar umræðu sem farið hefur fram að undanförnu um meintar hleranir þingmanna og ráðherra. Ég kem upp til að spyrja dómsmálaráðherra og eftir atvikum aðra sem að málinu gætu komið, hvort þeir telji að nóg sé að gert í þessum málum, þ.e. að annars vegar sé starfandi nefnd sem eigi að kalla fram þau skjöl sem til eru um meintar hleranir og eftirlit með þingmönnum og ráðherrum og öðrum á tímum kalda stríðsins eða fram til ársins 1991, og svo hins vegar sú ákvörðun ríkissaksóknara að rannsaka tiltekið hlerunarmál, þ.e. þegar sími fyrrverandi utanríkisráðherra eða uppi eru grunsemdir um að sími fyrrverandi utanríkisráðherra hafi verið hleraður árið 1993. Á bak við það mat ríkissaksóknara liggur væntanlega sú skoðun hans að það sé sterk vísbending um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað, að öðrum kosti hefði hann væntanlega ekki ráðist í rannsóknina. Það er auðvitað sjálfstætt ákvörðunarefni. En ég vil spyrja hvort menn telji ekki ástæðu til að skoða þessi mál heildstætt eins og gert var í Noregi. Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hefur útlistað fyrir þingmönnum og fjölmiðlum hversu vel sú leið hafi gefist. Til að eyða allri tortryggni í þessum málum og fá þau upp á borðið hefði ég talið rétt að formenn þingflokkanna kæmu sér saman um að fara svipaða leið á Íslandi og þar var farin og vil ég því spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir því.