Ríkisútvarpið ohf.
Herra forseti. Mér er bæði ljúft og skylt að svara þeim spurningum sem hv. þm. Ögmundur Jónasson varpaði fram til mín. Hann spurði í fyrsta lagi hvort ég teldi að víðtæk sátt mundi nást um fyrirkomulag nefskatts sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Til að svara þeirri spurningu þá vil ég segja að ég tel að það muni nást víðtækari sátt um það fjármögnunarkerfi en það kerfi sem nú er viðhaft vegna þess að afnotagjaldakerfið er úr sér gengið, það er dýrt og að mörgu leyti ósanngjarnt og það er gengið sér til húðar. Ég held að allir séu sammála um að það verði að skipta um aðferðir til að fjármagna rekstur stofnunarinnar.
Auðvitað er alltaf erfitt að mæla með skattheimtu, að minnsta kosti fyrir mann í minni stöðu. En ég held að það fyrirkomulag sé skárra en núverandi kerfi og ég held að almenningur sem mun greiða þennan nefskatt muni fylkja sér á bak við hann frekar en afnotagjöldin, ég tala nú ekki um þegar í ljós kemur að greiðslubyrði af afnotum og aðgangi að ríkissjónvarpinu verður minni en samkvæmt núgildandi kerfi.
Síðan spurði hv. þingmaður um hina pólitísku stjórn og alvald stjórnarinnar yfir félaginu. Nú er það þannig að við höfum komið okkur saman um að ríkið eigi þetta fyrirtæki og reki það. Þá er spurningin: Hver á að stjórna fyrirtækinu? Það hlýtur að vera eigandinn. Og hver úr röðum eigandans á að stjórna því? Það eru kjörnir fulltrúar eigandans, kjörnir fulltrúar almennings. Ég geri því engar athugasemdir við að það séu kjörnir fulltrúar á Alþingi eða pólitískir aðilar sem stjórna þessu fyrirtæki.