133. löggjafarþing — 13. fundur,  17. okt. 2006.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[20:02]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það eru nokkur atriði í sambandi við þetta mál sem ég ætlaði að gera aðeins betur að umtalsefni en mér vannst tími til að gera í 1. umr. Í allan dag hefur staðið fróðleg umræða um málið. Það er þó kannski helst að maður sakni þess að aðstandendur málsins, stjórnarliðar, stuðningsmenn málsins, sem maður verður að ætla að almennt séu í þeirra röðum, hafi komið fram og auðgað umræðuna með því að færa fram rök sín fyrir frumvarpinu. Við eiginlega sitjum að mestu leyti uppi með framsöguræðu menntamálaráðherra í þeim efnum og það hefur verið heldur fátæklegur málflutningur af hálfu stjórnarliða nema helst svona í andsvörum og það hefur þá gjarnan falist í að ónotast út í það að menn skuli yfirleitt vera að ræða málið.

Málið á sér langa sögu eins og menn vita og frumvarpið hefur tekið breytingum. Þetta hefur verið ein meira og minna samfelld hrakfallasaga hjá hæstv. ríkisstjórn og við erum að fá í hendur í raun þriðju útgáfu, þriðju atrennu ríkisstjórnarinnar að því að breyta Ríkisútvarpinu og eiginlega að sumu leyti þá verstu, þ.e. að núna er það í gadda slegið að Ríkisútvarpið skuli verða hlutafélag, það skuli búið í fyrirtækjarekstrarform, undirbúið þannig undir þess vegna einkavæðingu að einhverju leyti. Skilgreiningu þess sem fyrirbæris í samfélaginu í raun og veru breytt því að Ríkisútvarpið sem ríkisstofnun á grundvelli sérlaga hefur auðvitað verið skilgreind, og það hefur verið undirstrikað í lögum, sem menningarstofnun, sem þjónustustofnun, sem almannaútvarp, en nú á rekstrarformið sem sagt að færast yfir í það sem notað er í fyrirtækjaheiminum á samkeppnismarkaði, samkeppnisrekstri.

Ég nefndi það reyndar í gær, frú forseti, að sérstök ástæða væri til að fá Framsóknarflokkinn til umræðunnar. Það hefur farið ákaflega lítið fyrir honum í umræðunni og maður hefur eiginlega ekkert heyrt Framsóknarflokkinn færa nein rök af sinni hálfu fyrir því að standa að þessu frumvarpi. Ég nefni sem dæmi að það hefði verið ákaflega fróðlegt fyrir okkur þingmenn að fá nýjan formann Framsóknarflokksins til umræðunnar, hæstv. iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson. Það er nú almennt forvitnilegt að fá hæstv. ráðherra svona til skrafs á sínum fyrstu metrum í pólitík, ef svo má að orði komast, því að hæstv. ráðherra gerðist nú stjórnmálamaður á miðju sumri og var kallaður úr Seðlabankanum til að lappa upp á ríkisstjórnina og gerast ráðherra og tók síðan við flokknum undir haust. Eðlilega leikur okkur nokkur forvitni á að kynnast viðhorfum hæstv. ráðherra, formanns Framsóknarflokksins, þar á meðal t.d. hvernig Framsóknarflokkurinn undir forustu hans rökstyður og réttlætir aðild sína að þessu máli. Það á alveg sérstakt erindi inn í umræðuna vegna þess að Framsóknarflokkurinn þóttist ætla að standa í lappirnar í þessu útvarpsmáli lengi vel og um það var ályktað á þeim bæ og þeir gengu jafnvel til kosninga og skreyttu sig með þeim fjöðrum að kjósendur vissu nú hvar þeir hefðu Framsóknarflokkinn því að þeir mundu ekki standa að því að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag, svona svipað og þeir sögðu einu sinni að þeir mundu ekki selja Símann með grunnnetinu.

Það fór nú fyrir lítið eins og kunnugt er. Ein kenningin sem var uppi var sú að fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra hefði orðið að kaupa stólinn svo dýru verði. Maður var stundum farinn að hugsa þetta svona í huganum svipað og sögu Nóbelsskáldsins góða af brauðinu dýra, að það hefði eiginlega þurft að skrifa aðra sögu um stólinn dýra, (Gripið fram í: … margborgaðasti stóll Íslandssögunnar.) einhver allra dýrasti og margborgaðasti stóll Íslandssögunnar, er hér lagt til umræðunnar og sennilega rétt. Það var a.m.k. sú skýring sem menn gripu oft til þegar þeir stóðu frammi fyrir eiginlega alveg óskiljanlegri uppgjöf Framsóknarflokksins í hverju málinu á fætur öðru.

Ég held t.d. að þetta Ríkisútvarpsmál hafi verið með allra makalausustu magalendingum Framsóknarflokksins í málum af þessu tagi vegna þess að þetta er auðvitað ákaflega táknrænt. Ég hafði í raun trúað því að Framsóknarflokkurinn í hjarta sínu meinti það sem hann væri að segja um Ríkisútvarpið, að hann vildi helst ekki fara að atast í því og breyta því í hlutafélag. En þá hefur væntanlega niðurstaðan orðið sú að flokkurinn hefur verið í þeirri klemmu, settur þannig upp við vegg af samstarfsflokknum eða af einhverju, að hann hefur talið sig verða að fórna þessu, éta þetta ofan í sig, láta þetta yfir sig ganga. Hvað gat það þá verið nema hugsanlega þetta, að formaður flokksins átti í vændum að fá að setjast í forsætisráðherrastólinn ef allt gengi nú upp, ef stjórnarsamstarfið héldi. Það er auðvitað mjög margt sem bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi heldur betur kunnað að meta þennan gambít, þennan gaffal, eins og sagt er í bridgespilamennsku þegar andstæðingurinn er settur í þá erfiðu aðstöðu að hann verður að kasta af sér vörninni í öðrum lit af tveimur eða eitthvað svoleiðis, að Framsóknarflokkurinn hafi einfaldlega orðið að færa slíka fórn, í það skipti fyrir stólinn.

Nú má spyrja: Af hverju gerir flokkurinn það aftur í haust? Nú er enginn forsætisráðherrastóll lengur sem Framsóknarflokkurinn þarf að borga fyrir, hann er búinn að missa hann. Hvers vegna er þá Framsóknarflokkurinn aftur að standa að því að leggja þetta frumvarp fram eftir skipbrot þess á þingi síðasta vor, eftir þá miklu andstöðu sem ljóst er að uppi er í málinu, bæði hér innan þingsala og í þjóðfélaginu líka? Hafa þá farið fram ný kaup, hefur Framsóknarflokkurinn selt endurframlagningu þessa frumvarps fyrir eitthvað annað? Hefur hann kannski fengið skjól með einhver gælumál sín í staðinn? Það er von að maður spyrji vegna þess að samstarf þessara stjórnarflokka virkar yfirleitt á þennan veg. Það má nánast gefa sér að ef lending hefur tekist í erfiðu máli sem varðar annan stjórnarflokkinn miklu eða annar stjórnarflokkurinn leggur mikla áherslu á, þá hefur hinn fengið eitthvað í staðinn. Það er bara reglan, við þekkjum það, hvort sem það er í bankasölum, þegar verið er að selja banka eða gera eitthvað annað. Það hefði verið mjög fróðlegt, eins og ég segi, frú forseti, að fá formann Framsóknarflokksins til umræðna um þessi mál. Ég ætla ekki að gera þá kröfu að hann verði ræstur út eða sóttur hingað úr því að hann er ekki viðstaddur og hlýtur þá að hafa öðrum skyldum að gegna. Reyndar mætti segja það sama um mjög marga hæstv. ráðherra, að þeir hljóta að hafa öðrum skyldum að gegna því að hér sjást þeir ekki, nema hæstv. menntamálaráðherra lítur hér í gættina af og til og það gerist náttúrlega æ augljósara að menn taka þingskyldur sínar ekki mjög alvarlega, þeir sem þær eiga að rækja.

Nú er það að vísu svo að hæstv. iðnaðarráðherra er ekki kjörinn þingmaður en hann er ráðherra og á sem slíkur seturétt, málfrelsi og tillögurétt á Alþingi en það má auðvitað velta því fyrir sér hvort honum beri alveg sömu ríku þingskyldurnar í ljósi þessa. Alla vega er þó ljóst að hann ætti að vera hér við umræður sem varða málaflokka hans sem ráðherra og umræður sem varða hans flokk sem hann er í forsvari fyrir. Ég lýsi því yfir fyrir mína hönd, frú forseti, að það verður þá ekki síðar en í 2. umr. málsins, ef til hennar kemur, sem við munum krefjast þess að formaður Framsóknarflokksins mæti hér til leiks og reyni að svara fyrir málefni flokks síns og útskýri fyrir okkur hvernig í ósköpunum geti staðið á því að Framsóknarflokkurinn skuli hýða sjálfan sig með því að standa að framlagningu þessa frumvarps núna á kosningavetri þegar ljóst má vera að þetta verður eitt af allra umdeildustu og harðvítugustu deilumálum þingvetrarins.

Það er svo sem líka rannsóknarefni, sérstaklega fyrir áhugamenn um stjórnmál hvað valdi þessari þráhyggju Sjálfstæðisflokksins. Hvað veldur því að hlutafélagasýkin, háeffmeinlokan hjá Sjálfstæðisflokknum eða a.m.k. hæstv. menntamálaráðherra og einhverjum fleirum þar á bæ, ber þá svo gjörsamlega ofurliði að flokkurinn velur að þjösna þessu máli áfram og láta almennu löggjöfina um fjölmiðla bíða, velur að stofna aftur til átaka og deilna um fjölmiðlamál á þingi í stað þess að fara einhverja sáttaleið? Það þarf eitthvað mikið til til að fá botn í það af hverju Sjálfstæðisflokkurinn undir forustu hæstv. menntamálaráðherra velur þetta verklag.

Ég vil nota þetta tækifæri og mun gera það víðar á næstunni að hvetja almenning í landinu, hvetja þjóðina til þess að setja sig inn í þessi mál. Ég held að almenningur þyrfti að fara yfir það og velta því fyrir sér hvort þetta sé ekki eitt af þeim málum sem ástæða sé til að fara ofurlítið í saumana á í vetur og sjá gjarnan til að verði haft með í farteskinu þegar kemur að því að krefja stjórnarflokkana reikningsskap gjörða sinna.

Það er alveg á hreinu að margir í þjóðfélaginu láta sig málefni Ríkisútvarpsins varða. Mörgum er annt um þessa stofnun. Ríkisútvarpið á sér mjög dyggan aðstandenda- og stuðningsmannahóp í samfélaginu. Það á sér öflug hollvinasamtök en það á sér öflugasta hópinn í formi þeirra fjölmörgu hlustenda og áhorfenda sem halda tryggð við þennan miðil. Það er t.d. alveg ljóst að eldra fólk og eftirlaunafólk, sem hefur meira næði til, eyðir verulegum tíma í samvistum við Ríkisútvarpið. Það hlustar mikið á gömlu, góðu Gufuna. Það horfir t.d. merkilega mikið á útsendingar héðan frá Alþingi þann hluta dagsins sem þær eru ekki rofnar eða þeim er ekki drekkt í annarri dagskrá, og minnir mig í leiðinni á það sem ég hef oft ætlað mér að taka betur á, að það er til skammar að ekki skuli núna á tækniöld og við með öll þessi efni sjá til þess að það sé órofin útsending héðan af fundum Alþingis á öldum ljósvakans. Það er alveg yfirgengilegt að það skuli ekki fyrir löngu hafa verið gert og því komið út um allt land. Það er vissulega ekki bara við Ríkisútvarpið að sakast í þeim efnum, það er aumingjaskapur þingsins líka að hafa ekki séð til þess að svo sé gert. En svo mikið veit ég, vegna þess að ég fæ mjög iðulega viðbrögð frá fólki sem fylgist með útsendingum héðan, þar á meðal viðbrögð þar sem kvartað er yfir því þegar útsendingin rofnar og dagskrá hefst síðdegis, að það er býsna drjúgur hópur sem nýtur þess eða notar sér það að fylgjast með stöfum hér í gegnum sjónvarpið eða þá styttir sér stundir með því að njóta annarrar dagskrár.

Þessum tugum þúsunda og auk þess held ég landsmönnum almennt er ekki sama um Ríkisútvarpið. Ég held að viðfangsefni okkar núna á næstu mánuðum, eftir að þetta mál fer til nefndar, sem ég geri ráð fyrir að verði því að ríkisstjórnin mun væntanlega ekki bera gæfu til að láta hér staðar numið, að við hvetjum til þess að umræða verði um málefni Ríkisútvarpsins. Það verði tekin almenn, breið umræða um hvort hlutafélagavæðing Ríkisútvarpsins er það sem landsmenn vilja. Það væri t.d. líka fróðlegt að sjá vandaða skoðanakönnun um það mál.

Ég hef ærna ástæðu til að ætla að stór hluti þjóðarinnar mundi hafna því. Stór hluti þjóðarinnar mundi vilja hafa sitt Ríkisútvarp áfram sem Ríkisútvarp, sem ríkisstofnun, sem almannaútvarp í þannig rekstrarformi. Og fyrst og fremst vilja að búið yrði betur að því.

Það er að vísu þannig að afnotagjöldin hafa verið mikið milli tannanna á fólki. Mikið hefur verið gert úr því að þau séu ósanngjörn eða einhver þvingunaraðgerð, að menn séu skyldugir til að borga þau. Einhvern veginn þarf að fjármagna rekstur almannaútvarps ef á það eru lagðar menningarskyldur og öryggisskyldur og aðrir slíkir hlutir, ef menn ætla því metnaðarfullt hlutverk í innlendri dagskrárgerð o.s.frv. Það er augljóst að slíkt mun ekki takast á markaðsforsendum einum, á grundvelli tekna sem aflað verður með þeim hætti. Þá er það bara fyrirkomulagsatriði hvernig menn sjá fyrir því að tryggja slíkri starfsemi nægjanlegar tekjur. Það er alveg sjálfsagt mál og rétt og skylt að fara rækilega yfir það.

Ég hallast að því, og ég býst við að mjög margir séu þeirrar skoðunar, að eðlilegast væri að Ríkisútvarpið væri einfaldlega á fjárlögum. Aðaláhyggjur manna hafa verið þær að því yrði illa að treysta að á niðurskurðar- og þrengingartímum yrði ekki gripið til þess að leika Ríkisútvarpið grátt og skammta því naumt. Að vísu má segja að það hafi nú ekki riðið feitum hesti frá núgildandi fyrirkomulagi undanfarin ár. Það er aldeilis ekki þannig.

En í öllu falli mundu menn þurfa að skoða þetta mjög rækilega og það stendur ekkert á mönnum að gera það. Ef hæstv. ríkisstjórn og hæstv. menntamálaráðherra eru ekki hér að reyna að þröngva fram þeim vilja sínum, þeirri meinloku, að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið.

Ég held að ærin ástæða sé til að menn staldri við og hugsi sinn gang í sambandi við þetta mál. Það er ágætur tími til stefnu að gera það fram að áramótum. Það væri alveg fráleitt að fara að ástunda eitthvert óðagot í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Það eru engin efni til þess. Við þurfum að sjálfsögðu að ræða hér síðan í framhaldinu þau frumvörp sem málinu tengjast. Það er frumvarp um Sinfóníuhljómsveitina. Það er frumvarp okkar þingmanna Vinstri grænna um Ríkisútvarpið þar sem í frumvarpsformi er lögð til önnur leið, sérstaklega hvað varðar stjórnsýslu stofnunarinnar og stjórnun dagskrármála. Lýðræðisleg leið sem byggist á valddreifingu og lýðræði og aðkomu margra aðila, aðkomu fagaðila, að því að listamenn og starfsmenn og aðrir slíkir fái að hafa sitt orð og fái að hafa hönd í bagga en ekki þetta miðaldaeinræðisskipulag sem hæstv. menntamálaráðherra vill beita sér fyrir með því að gera einn handvalinn útvarpsstjóra að alræðisvaldi þarna innanbúðar eins og frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið ohf. gengur því miður út á.

Frú forseti. Það er alveg ljóst að við eigum ýmislegt órætt og ýmislegt óskoðað í þessum málum. Gæfulegast væri auðvitað ef ríkisstjórnin tæki sönsum og kæmi öllum þessum málefnum — og þá líka og ekki síður frumvarpinu um fjölmiðlalöggjöfina almennt. Frumvarpinu sem er einnig á ferðinni til breytinga á útvarpslögum og lögum um prentrétt, samkeppnislög og allt það. Fjölmiðlafrumvarpið eins og það er gjarnan kallað. Það væri miklu meira gaman að takast á við þessi mál ef í boði væri að reyna að landa sæmilega uppbyggilegu heildarsamkomulagi um meðferð þessara mála.

Það blasir svo við hvað það er lítið sem hæstv. menntamálaráðherra þarf að leggja á sig í þeim efnum. Hvað það er lítið. Það eru bara tveir stafir, þeir eru nú orðnir þrír núna, sem þurfa að hverfa. Ég held að það sé töfraformúlan. Þrír stafir hverfa, ohf. Um leið og hæstv. menntamálaráðherra fellst á að fara ekki að þröngva þessari hlutafélagavæðingu í gegn — í mjög harðri andstöðu við stóran hluta þingheims, og ég trúi meiri hluta þjóðarinnar, jafnvel heilmikilli dulinni andstöðu innan sjálfra stjórnarflokkanna sem lætur lítið fyrir sér fara — gjörbreytast aðstæður til að vinna að málinu.

Auðvitað þyrfti þá líka að taka upp þessar hugmyndir um stjórnsýslu Ríkisútvarpsins. Það er alveg ljóst að menn geta ekki sæst á hana í þessu hlutafélagaformi, þó svo að hlutafélagavæðingin sjálf hyrfi. En ég trúi því, og ég segi fyrir mitt leyti og vil lýsa því yfir fyrir hönd okkar flokks, að við útilokum ekkert í þeim efnum hvað varðar rekstrarfyrirkomulagið, bara ef ekki er farin sú leið að henda Ríkisútvarpinu inn í fyrirtækjalöggjöfina eins og hverjum öðrum atvinnurekstri í gróðaskyni og hverjum öðrum samkeppnisatvinnurekstri.

Eins og ég minntist á í ræðu fyrr í umræðunni, sennilega í gærkvöldi, frú forseti, hefur nefnilega gagnrýnin á það fyrirkomulag komið bæði frá hægri og vinstri. Það er dálítið merkilegt hve hljótt er um það að ýmsir ágætir hægri menn, markaðshyggjumenn, samkeppnisrekstrarsinnar miklir, hafa gagnrýnt að Ríkisútvarpið sé sett inn í fyrirtækjalöggjöfina eins og hver annar atvinnurekstur í samkeppni á markaði. Það eigi þar ekkert heima. Þessi fjölmiðill, þessi menningarstofnun, þessi almannaþjónustustofnun sem Ríkisútvarpið á að vera.

Frú forseti. Tíma mínum er lokið og ég held að ég hafi að mestu leyti komið því að sem ég hafði hugsað mér að gera hér við fyrri umræðu. En ég endurtek að ég er ekki skilinn að skiptum við Framsóknarflokkinn og mun sjá til þess að þeir komi hér og standi fyrir máli sínu í síðasta lagi þegar eða ef 2. umr. verður um málið.