Ríkisútvarpið ohf.
Hæstv. forseti. Ég ítreka fyrri ummæli mín og staðhæfi að útvarpsstjóri hefur verið í pólitískri áróðursherferð með hæstv. menntamálaráðherra fyrir hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Hæstv. menntamálaráðherra og útvarpsstjóri hafa birst sameiginlega í Kastljósi að tala fyrir þessum breytingum, birtust nýlega til að kynna samkomulag um dagskrárefni í Ríkisútvarpinu sem var kynnt í tengslum við hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Þetta er alveg ótvírætt.
Ég hef áður gert grein fyrir þeirri skoðanakönnun sem hæstv. ráðherra leyfir sér að vitna í og er mjög misvísandi og var misvísandi framreidd í fréttum Ríkisútvarpsins, en hún var framkvæmd á vegum þess. Ég aflaði mér upplýsinga um hvort útvarpsráð hefði komið þar við sögu, nei, það var Ríkisútvarpið og embættismenn þess sem höfðu þetta með höndum. Starfsmenn Ríkisútvarpsins og samtök þeirra hafa mótmælt fyrirhugaðri hlutafélagavæðingu, enda er verið að skerða réttindi starfsmanna, verið er að skerða lífeyrisréttindi og önnur réttindi sem þeir búa við. Hins vegar er verið að færa einum manni, útvarpsstjóra, alræðisvald yfir allri dagskrárgerð og öllum mannaráðningum, réttinum til að ráða og reka fólk. Þetta hefur ekkert með nútímann eða framtíðina að gera. Þetta er afturhald og verið er að grafa undan Ríkisútvarpinu með þessum hætti. Það hefði verið hægt að ná sátt og það er enn hægt að ná sátt ef menn setja sér sameiginleg markmið um að vilja raunverulega tryggja og styrkja Ríkisútvarpið, bæta fjárhagslega stöðu þess og rekstrarfyrirkomulagið. Um það liggja fyrir tillögur í þinginu, en ríkisstjórnin með hæstv. menntamálaráðherra í broddi fylkingar kemur í veg fyrir að það frumvarp fái núna umfjöllun og verði sent til umsagna samhliða þessu frumvarpi. Eru það lýðræðisleg vinnubrögð?