Flugmálastjórn Íslands.
Virðulegi forseti. Það er kannski rétt í fyrstu, um leið og ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir, að vekja athygli á mismæli. Samningnum hefur ekki verið sagt upp, heldur hafa orðið breytingar. Varnarliðið er farið. Það er rétt að það komi fram.
Eins og þekkt er rekur Flugmálastjórn Íslands alla flugvelli landsins nema Keflavíkurflugvöll. Skoðun mín og afstaða er sú að tvískiptingin sé ekki heppileg. En það fyrirkomulag er barn síns tíma og á sér þær skýringar sem hv. þingmenn þekkja og tengist veru varnarliðsins hér.
Um þetta hefur verið fjallað bæði í samgönguráðuneytinu og sömuleiðis hefur flugráð þar sem eru sérfræðingar okkar og þeir aðilar sem þekkja best til hvað varðar rekstur flugmálanna. Flugráð hefur m.a. ályktað svo sem hér segir, með leyfi forseta:
„Flugráð vill ítreka“ — segir í samþykkt flugráðsins — „að nauðsynlegt sé að taka til endurskoðunar þá tvískiptingu sem nú er í stjórn flugmála hér á landi vegna sérstakrar réttarstöðu Keflavíkurflugvallar. Þessi tvískipting veldur því að ábyrgð stjórnsýslu og eftirlitsaðila í hinum ýmsu þáttum starfseminnar er óljós og veldur vaxandi erfiðleikum í samskiptum við alþjóðlegar stofnanir á sviði flugmála sem gera ráð fyrir því að aðeins einn aðili sé í forsvari fyrir flugmál í hverju ríki. Kostnaður vegna þessa tvöfalda kerfis er jafnframt verulegur. Með því að færa stjórn flugmála á Keflavíkurflugvelli undir beina yfirstjórn Flugmálastjórnar Íslands mætti ná samlegðaráhrifum, auka á skilvirkni og efla öryggi í flugi. Sameiginlegur rekstur allra flugvalla í landinu mundi hafa í för með sér verulegan ávinning fyrir flugsamgöngur landsins.“
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26. september í tengslum við brottför varnarliðsins kemur fram í 8. lið eftirfarandi texti þar sem segir, með leyfi forseta:
„Við brotthvarf varnarliðsins er eðlilegt að yfirstjórn málaflokka og stjórnsýsla á Keflavíkurflugvelli breytist til samræmis við það sem almennt tíðkast í landinu og mun ríkisstjórnin vinna í því.“
Það sem hér er um að ræða er að gert er ráð fyrir því að umhverfismál falli að sjálfsögðu undir umhverfisráðuneyti með sama hætti og dómsmál og lögreglumál falli að verkefnum dómsmálaráðuneytis. Er að því unnið á sama hátt að samgöngumál og þar með flugvallarreksturinn heyrir þá undir samgönguráðuneytið.
Þetta er held ég hinn eðlilegi gangur málsins. Það tekur einhvern tíma að vinna að þessu. Við þurfum að vanda allar þær breytingar og gera þær þannig að sem best takist til.
Af þessu tilefni er rétt að fara aðeins yfir það að samkeppnin í fluginu í veröldinni er geysilega hörð. Við Íslendingar búum svo vel að vera í miðju Atlantshafinu og njótum þess að sinna þjónustu vegna tengiflugsins sem fer hér um og nýtur þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þar er margs konar rekstur og starfsemi. Ljóst er að vaxandi og auknar kröfur eru, það þekkjum við vel í samgönguráðuneytinu, um hagkvæmni í þessari starfsemi og kröfur um aukna afkastagetu og aukna flugvernd. Því eru flugöryggiskröfur stöðugt til meðferðar.
Það er því verkefni okkar, m.a. í samgönguráðuneytinu, að vinna að þeim breytingum sem eru nauðsynlegar til þess að við Íslendingar getum áfram staðið okkur vel í þeirri hörðu samkeppni sem er á þessum flugleiðum og veitt sem besta, öruggasta og ódýrasta þjónustu. Mat mitt er að það gerum við best með því að ná saman kröftum okkar undir einum stjórnunaraðila sem ræki alla flugvelli landsins. Falla þar með skoðanir mínar saman við það sem m.a. flugráð, forsvarsmenn flugfélaganna (Forseti hringir.) og fleiri aðilar hafa sett fram.