framhaldsskóli í Mosfellsbæ.
Frú forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra um framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Ég beindi sömu fyrirspurn til ráðherrans í mars 2004 og hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir beindi síðan fyrirspurn til ráðherra um framhaldsskóla í Suðvesturkjördæmi í maí síðastliðnum. Ég kom inn í þá umræðu vegna fregna af skýrslu frá menntamálaráðuneytinu um að framhaldsskóli í Mosfellsbæ væri forgangsverkefni. Þá spurði ég ráðherra hvort það væri rétt að næsti framhaldsskóli á höfuðborgarsvæðinu risi í Mosfellsbæ. Í svari menntamálaráðherra kom m.a. fram, með leyfi forseta:
„Ég mun sérstaklega líta til þessara tillagna og þessarar skýrslu frá hópnum sem vísbendingar og vegvísis til þess að móta starfið. Það er alveg ljóst að hann segir Mosfellsbær fyrst og síðan uppbygging á norðausturhluta höfuðborgarsvæðisins ásamt utanverðum Eyjafirði.“
Til að halda málinu gangandi, frú forseti, þá spyr ég enn og aftur um framhaldsskóla í Mosfellsbæ og vænti jákvæðra viðbragða. Það er rétt að taka fram að Mosfellsbær telur nú um 7.500 íbúa og fer þeim mjög ört fjölgandi. Samkvæmt mannfjöldaspá er gert ráð fyrir að íbúarnir verði um 10 þúsund árið 2010 eða eftir fjögur ár. Á framhaldsskólaaldri eru nú um 110 unglingar í hverjum árgangi og er bærinn eitt af þeim sveitarfélögum sem hafa hæst hlutfall barna og unglinga af heildarfjölda íbúa. Framhaldsskóli í Mosfellsbæ mundi geta þjónað nærliggjandi hverfum Reykjavíkur, t.d. Kjalarnesi og nám í framhaldsskólanum mætti jafnvel tengja við umhverfið t.d. endurhæfingartengt nám í tengslum við Reykjalund, listnám í tengslum við mikla liststarfsemi í Álafosskvos. Þetta er spurning um kostnað íbúanna m.a. að þurfa ekki að ferðast langar leiðir til að komast til og frá námi. Þetta er líka spurning um öryggi á Vesturlandsvegi að þurfa ekki að keyra á þeim þjóðvegi niður í bæ til að komast í nám.
Frú forseti. Að framansögðu beini ég fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra: Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að framhaldsskóli rísi í Mosfellsbæ eins og nefnd á vegum ráðuneytisins hefur mælt með samkvæmt svari ráðherra við fyrirspurn frá Rannveigu Guðmundsdóttur í vor? Ef svo er, hvenær er áætlað að skólinn taki til starfa?