133. löggjafarþing — 14. fundur,  18. okt. 2006.

staðbundið háskólanám á landsbyggðinni.

157. mál
[15:12]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Næsti áfangi í menntasókn okkar Íslendinga á að mínu mati að vera uppbygging á staðbundnu háskólanámi á landsbyggðinni. Besta byggðaaðgerð Íslandssögunnar, síðari tíma a.m.k., var uppbygging Háskólans á Akureyri. Samfélagið þar tók stakkaskiptum og að mörgu leyti má sama segja um samfélagið í Borgarfirðinum eftir að Viðskiptaháskólinn eða Háskólinn á Bifröst tók þar til starfa á síðustu missirum og hefur vaxið og gengið frábærlega vel. Staðbundin háskólamenntun skiptir sköpum fyrir samfélagið að öllu leyti, samsetningu þess og uppbyggingu.

Vísir að háskólamenntun er víða annars staðar á landinu. Í gegnum símenntunarstöðvarnar og fræðslunetin á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og Norðurlandi vestra stunda nú 400–500 manns háskólanám í fjarnámi á ári hverju. Aukningin hefur verið mikil og er þetta að verða að stærsta einstaka þættinum í starfsemi símenntunar- og fræðslumiðstöðvanna sem upphaflega voru settar á stofn til að þjóna endurmenntun og símenntun fyrir fullorðna. Þetta er glæsileg þróun, þetta er jákvæð þróun.

Tölurnar eru hins vegar óhagstæðar fyrir háskólamenntun á landsbyggð. Í dag er það svo að árið 2005 var um 12 milljörðum kr. varið til háskólamenntunar 16.625 Íslendinga, eru kannski orðnir fleiri núna, og á fjárlögum fyrir árið 2007 er reiknað með yfir 12 milljörðum kr. til háskólamenntunar. Það eru átta íslenskir háskólar og staðan er sú að 82% nemenda við háskóla eru í háskólum á Reykjavíkursvæðinu en einungis 18% úti á landsbyggð og þá eru teknir með háskólarnir sem landbúnaðarráðuneytið veitir fjármuni til. Án þeirra væru þetta 15% frá menntamálaráðuneytinu. Á sama tíma búa 83% landsmanna á höfuðborgarsvæðinu en hins vegar stunda 85% háskólanema þar nám. 36% allra nýnema eru utan af landi en einungis 18% háskólanema stunda nám úti á landi, fyrir utan Reykjavík. Þetta er mikið ósamræmi og mikið ójafnvægi og það er ástæða til að ráðast í mikla menntasókn og uppbyggingu á staðbundnu háskólanámi úti á landi. Það er ekki bara besta byggðaaðgerðin, það er einhver besta samfélagslega fjárfesting sem við getum ráðist í, það er fjárfestingarátak í menntun og ekki síst í staðbundnu háskólanámi úti á landi. En staðan er eins og ég rakti áðan um muninn á framlögum til háskólamenntunar annars vegar í Reykjavík og hins vegar úti á landi. Því spyr ég hæstv. menntamálaráðherra þeirra spurninga sem ég legg fyrir hana í dag hvort það standi til að ráðast í frekari uppbyggingu á staðbundnu háskólanámi úti á landi.