133. löggjafarþing — 14. fundur,  18. okt. 2006.

staðbundið háskólanám á landsbyggðinni.

157. mál
[15:25]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Frú forseti. Það sem skiptir máli er að auka aðgengi fólks að háskólanámi. Þá skiptir líka máli að hafa í huga umhverfið þegar Háskólinn á Akureyri var stofnaður. Hvað voru margir háskólar hér á landi þá? Það var einn háskóli. Síðan var Háskólinn á Akureyri stofnaður og nú höfum við átta háskóla þannig að framboðið á háskólanámi og háskólum hefur gerbreyst og tekið stakkaskiptum síðan Háskólinn á Akureyri tók til starfa á sínum tíma.

Það sem mér finnst vera lykilatriði í þessu er aðgengi fólks að náminu og að háskólanámið verði sem best. Það getur vel verið að það þróist út í það að vera staðbundið nám, þ.e. ef háskólastofnanirnar meta það heppilegast í ljósi gæðanáms og þess að uppfylla þær kröfur sem fólk gerir á viðkomandi stað hverju sinni. Ég tel mikilvægt að háskólarnir verði í miklu samstarfi eftir sem áður við símenntunarmiðstöðvarnar.

Það er ekki rétt sem kom fram áðan að menntamálaráðuneytið og það sem undir það heyrir sé ekki að fjárfesta í menntun eða háskólaígildum á landsbyggðinni því að að sjálfsögðu er borgað líka fyrir nemendur og þá sem stunda nám úti á landi. Það fer að sjálfsögðu gegnum reiknilíkanið og til háskólanna og það skiptir engu máli hvar þeir eru staðsettir. Það er að sjálfsögðu borgað fyrir þá.

Ég vil líka geta þess að sú þróun hefur verið t.d. í Danmörku að háskólastofnanir eru, eins og kannski má segja hér, að sameinast í ríkari mæli. Menn eru að leggja megináhersluna á að gera einingarnar stærri en aðgengið betra víðs vegar um landið. Þetta er að gerast í Danmörku, í Noregi og þetta er að gerast á Íslandi.

Við höfum verið sammála um það, ég og hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, að það sem þurfi líka að tryggja er gæði námsins. Ég held að núna verði megináherslan í öllu menntakerfinu, frá leikskóla til háskóla, á að efla gæðastarfið. Alþjóðlegar kröfur eru settar fram í því efni og þar verðum við Íslendingar líka að standa okkur.