133. löggjafarþing — 16. fundur,  19. okt. 2006.

varamaður tekur þingsæti.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Rannveig Guðmundsdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá Halldóri Blöndal, 2. þm. Norðaust., dagsett 16. október:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðaust., Sigríður Ingvarsdóttir, taki sæti á Alþingi á meðan.“

Sigríður Ingvarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.