hvalveiðar.
Virðulegur forseti. Mér þykir þetta mál í sérkennilegum farvegi. Fram hafa komið nokkuð mótsagnakenndar yfirlýsingar frá ráðherrum um hvernig samráði á milli ráðherra hafi verið háttað.
Hér segir hæstv. sjávarútvegsráðherra að ríkisstjórnin standi að baki þessari ákvörðun. Ríkisstjórnin standi heils hugar að baki þessari ákvörðun. Hann sagði líka á fundi með okkur formönnum stjórnarandstöðuflokkanna á þriðjudagsmorguninn kl. 11.30, þegar við vorum boðuð með hálftíma fyrirvara á fundinn til að tilkynna okkur um þetta, að þetta hefði verið samþykkt kl. 10. Í því hlýtur að felast að ríkisstjórnin hafi samþykkt þetta kl. 10 þann morgun.
Nú segir umhverfisráðherra hins vegar að hún hafi fyrirvara á málinu. Þá hlýtur sú spurning að vakna: Að hverju lýtur sá fyrirvari? Hvaða gildi hefur sá fyrirvari umhverfisráðherra? Er þá hugsanlegt að umhverfisráðherra hafi staðið andspænis því kl. 10 á þriðjudagsmorguninn að ákvörðun yrði tekin um hvalveiðar án undangengins samráðs við umhverfisráðherra? Ég hefði talið að ef einhver ætti að vera inni í samráðinu allan tímann og vera með í öllu ferlinu, þá væri það umhverfisráðherrann. Vegna þess að þessi mál koma auðvitað ekki síst til kasta umhverfisráðherra þegar umhverfisverndarsamtök fara af stað, eins og nú hefur gerst.
Þá skiptir máli að ríkisstjórnin tali einum rómi en það sé ekki sjávarútvegsráðherra sem segi eitt og svo kannski umhverfisráðherra eitthvað allt annað við umhverfisverndarsamtökin.
Ég get hins vegar vel skilið hæstv. umhverfisráðherra. Ég held að það sé rangt hagsmunamat hjá ríkisstjórninni sem hafi farið fram í þessu máli. En það er önnur saga. Hitt er alvarlegra að menn tali tungum tveim í ríkisstjórninni. Sjávarútvegsráðherra segi eitt og umhverfisráðherra annað. Því þetta eru þeir tveir ráðherrar sem mest hlýtur að mæða á í þessu máli.
Við hljótum að spyrja: Hver er fyrirvarinn? Að hverju lýtur hann og hvert er gildi þessa fyrirvara sem umhverfisráðherra hefur?