133. löggjafarþing — 16. fundur,  19. okt. 2006.

geðheilbrigðisþjónusta við börn og unglinga.

[11:02]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Tilefni þessarar utandagskrárumræðu eru aðgerðir og áætlanir hæstv. heilbrigðisráðherra á sviði heilbrigðisþjónustu barna og unglinga með hegðunar- og geðraskanir sem ráðherra kynnti í lok september. Hæstv. ráðherra er að bregðast við alvarlegu ástandi sem hefur skapast hjá mörgum fjölskyldum vegna langs biðtíma eftir greiningu, meðferð og síðan eftirfylgni vegna geðraskana barna og unglinga. Þetta ástand er ekki nýtt en hefur versnað ár frá ári. Ekki hefur vantað að skýrslur hafi verið lagðar fram þar sem vandinn var greindur. Bent hefur verið á margvíslegar leiðir til betri þjónustu en því miður hefur hvorki verið ráðist í heildarstefnumótun í málaflokknum né lagt til hans nauðsynlegt fjármagn þar til nú að hæstv. ráðherra kynnir aðgerðir sínar og áherslur.

Það ber að geta þess sem vel hefur verið gert og margir lítið til meðferðarteymis heilsugæslunnar í Grafarvogi sem fyrirmyndar í framtíðarskipan fyrir fjölskyldur í vanda. Eftir að meðferðarteymið komst í gang hefur tilvísunum á BUGL eða til barna- og unglingageðdeildarinnar fækkað mjög á því svæði, þ.e. í Grafarvoginum. En tilraunaverkefnið hefur nú staðið yfir á annað ár og hefur að margra mati fullsannað árangur og góða nærþjónustu. Með slíkri þverfaglegri vinnu á heilsugæslustöðvum er hægt að fyrirbyggja og aðstoða fjölskyldur í stað þess að sjúkdómsgreina hegðunarvandamálin.

Það er nú svo, hæstv. forseti, að ég tek undir flesta liði í áherslum hæstv. ráðherra, þ.e. að efla heilsugæsluna á geðheilbrigðissviði og draga úr eftirspurn eftir greiningu á barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss eða BUGL, eins og deildin er kölluð. En samkvæmt áætluninni á að efla barna- og unglingageðdeildina í hlutverki sínu sem miðstöð faglegs starfs á því sviði. Deildin býr yfir mikilli sérþekkingu og öflugum starfsmönnum en með tilliti til þess að deildin á að taka að sér aukin verkefni vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort starfseminni verður tryggt aukið rekstrarfé til að uppfylla auknar skyldur. Mikið álag hefur verið á starfsmönnunum og þá ekki síst barnageðlæknum sem hafa sprengt umsaminn einingafjölda Tryggingastofnunar ríkisins.

Göngudeildarþjónustu BUGL á að efla og er það vel. Samhliða aukinni göngudeildarþjónustu þarf að búa fjölskyldum utan af landi aðstöðu til dvalar meðan á meðferð stendur og hvet ég hæstv. heilbrigðisráðherra til að hafa frumkvæði í því máli. Því ber að fagna að nú er loksins búið að tryggja fjármagn til viðbyggingar fyrsta áfanga deildarinnar af þremur. Starfsemin hefur í mörg undanfarin ár búið við neyðarástand í húsnæðismálum og er ljóst að full þörf er á öllu því húsnæði sem er á teikniborðinu. Það skiptir því máli fyrir starfsmenn og skjólstæðinga stofnunarinnar að fá hið fyrsta framkvæmdaáætlun allra áfanga viðbygginganna þriggja, framkvæmdaáætlun sem þeir geta treyst því að byggingarsaga BUGL er núverandi heilbrigðisráðherra stjórnarflokkanna ekki til sóma.

Hæstv. forseti. Inn í áætlunina finnst mér vanta áætlun um uppbyggingu og eflingu barna- og unglingageðdeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sem meðferðar- og ráðgefandi sérfræðiþjónustu. Það skiptir miklu máli fyrir íbúa á Norðausturlandi að hafa öfluga geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sem auk þess mundi enn frekar létta álagið á BUGL. Á áætluninni er hvergi komið inn á stöðu BUGL í skipulagi og stjórnsýslu Landspítala – háskólasjúkrahúss. Þó hefur komið fram mikilvægi þess að taka deildina undan geðsviði fullorðinna, koma á kennslu í barna- og unglingageðlækningum og prófessorsstöðu við Háskóla Íslands. Sú skipulagsbreyting mundi stórefla rannsóknir á sviði og geðþjónustu barna og unglinga.

Hvað varðar nýtt hlutverk Miðstöðvar heilsuverndar barna í greiningu á meðferð og vægari einkennum þá tel ég að þann þátt þurfi að skoða vel með tilliti til mönnunar. Miðstöð heilsuverndar barna hefur ekki haft fjármagn til að ráða til sín barnageðlækni og úr því verður að bæta ef miðstöðin á að gegna enn frekari greiningar- og meðferðarhlutverki. Er til skoðunar að gera Miðstöð heilsuverndar barna enn sjálfstæðari einingu og ef svo er, ætti þá ekki að styrkja hana enn frekar með því að koma aftur á stöðu skólayfirlæknis? Hvers vegna er sú leið farin að fela Miðstöð heilsuverndar barna greiningar- og meðferðarhlutverk vægari einkenna í stað þess að taka upp þá fyrirmynd sem við höfum í Grafarvogi? Það er auðvelt að setja upp aðgerðaáætlun, auka fjármagn til starfsemi stöðvanna og áætlun um fjölgun stöðugilda á heilsugæslustöðvum.

Hæstv. forseti. Ég hef lagt nokkrar spurningar til hæstv. ráðherra sem ég óska eftir að hún svari í ræðu sinni.