aðgerðir gegn ofsaakstri í umferðinni.
Hæstv. forseti. Samkvæmt heimildum frá Umferðarstofu urðu á árinu 2005 12.972 skráð umferðarslys á Íslandi. Í sumum tilvikum urðu ekki meiðsli á fólki. Í flestum tilvikum varð um töluvert eignatjón að ræða. Á því herrans ári létust 19 einstaklingar í umferðinni. Þetta þýðir að á þriggja klukkustunda fresti verður umferðarslys á Íslandi. Það má líkja þessu við rússneska rúllettu. Á hverjum þremur klukkustundum megum við búast við umferðarslysi og verðum að bíða og vona að ekki sé um alvarlegt tjón á fólki að ræða.
Þegar á þessu ári hafa 22 einstaklingar beðið bana í umferðinni. Það má því með sanni segja að hér ríki neyðarástand í umferðinni og því þarf að breyta. Því þarf að breyta fyrr en síðar og það gerist auðvitað ekki nema með samstilltu átaki allrar þjóðarinnar.
Svo einkennilega sem það hljómar má að sumu leyti halda því fram að umferðarmenningu okkar hafi hrakað á síðustu árum, þrátt fyrir þá staðreynd að bílar eru mun betri í dag en þeir voru fyrir ekki svo mörgum árum með breyttum öryggisbúnaði. Vegir eru miklu betri. Víða á takmörkuðum svæðum hefur verið dregið úr ökuhraða og þannig má áfram telja. Þrátt fyrir það fer slysum fjölgandi.
Við þessu þarf að bregðast. Þá hljótum við að spyrja: Hvað er hægt að gera? Það liggur fyrir að bílaeign hefur vaxið óskaplega mikið. Það liggur líka fyrir að við sem erum að verða líklega ein mesta bílaþjóð veraldar, að meðal ökumanna eru fleiri ungir ökumenn á kraftmeiri bílum en nokkru sinni fyrr. Bílar verða kraftmeiri og ökumenn verða yngri, ef þannig má að orði kveða.
Niðurstaðan er sú að það hefur eitthvað gerst í umferðarmenningu okkar. Það er þetta „eitthvað“ sem við verðum að breyta og menningu breytum við ekki nema með samstilltu átaki. Þá kemur spurningin: Hvað er hægt að gera? Auðvitað er ýmislegt hægt að gera og ég vil sérstaklega nota þetta tækifæri og hrósa hinni húsvísku móður sem hreinlega tók bílinn af syni sínum, þeim sem hafði sýnt vítaverðan akstur, fjarlægði hann og seldi. Það eru ábyrgðarfull viðbrögð og ber að fagna þeim og fleiri mættu sýna slík viðbrögð. En hvað er hægt að gera?
Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu eru langsamlega flest slysin af völdum ökumanna á aldrinum 17 til 20 ára. Þeir skera sig verulega frá öðrum ökumönnum. Eftir 17 til 20 ára aldursbilið verður mjög hratt fall hvað varðar að vera orsakavaldur að slysum. Þess vegna hljótum við að draga þá ályktun að þar sé verk að vinna, meðal ungra ökumanna. Í tilefni af því leyfi ég mér að beina þeirri spurningu til hæstv. samgönguráðherra hvort m.a. komi til greina að auka möguleika til ökuleyfissviptinga meðal ökumanna sem hafa gert sig seka um vítaverðan ofsaakstur í umferðinni.
Það virðist nefnilega vera þannig að þeim sem kalla má ökuníðinga þyki vænst um tvennt. Annars vegar um ökuskírteinið sitt og hins vegar um bílinn sinn. Þess vegna hljótum við í refsiákvæðum að vilja horfa á þá möguleika hvort ekki megi svipta ökuníðinga sem sýna glæpsamlegt athæfi þessu skírteini og jafnvel bílum sínum.
Í annan stað spyr ég hæstv. ráðherra hvort til greina komi að takmarka réttindi ungra ökumanna. Við getum spurt okkur: Hvað hefur 17 ára unglingur að gera við 400 hestafla bíl?
Í þriðja lagi spyr ég hæstv. ráðherra hvort til standi að auka eftirlit með hraðakstri. Það þarf ekki annað en að nefna lögregluna á Blönduósi, alræmda gagnvart ökuníðingum, en rómaða gagnvart þeim sem virða umferðarreglur. Það þarf ekki að færa fleiri rök fyrir því.
Ég leyfi mér að beina þessum spurningum til hæstv. ráðherra í því neyðarástandi sem segja má að ríki í umferðinni í dag.