aðgerðir gegn ofsaakstri í umferðinni.
Frú forseti. Hér erum við að ræða mjög mikilvægt mál og ber að þakka hv. málshefjanda fyrir að færa það hér á dagskrá. Efst á blaði í málefnahandbók Frjálslynda flokksins er einmitt. að bæta umferðaröryggi og fækka slysagildrum til muna á þjóðvegum landsins.
Það skiptir einnig máli í þessari umræðu að við einbeitum okkur að þeim hópum sem hætt er við að brjóta reglurnar. Nefnt hefur verið til sögunnar í umræðunni unga fólkið. Einnig hefur verið bent á vélhjólamenn. Ég var í sumar á baráttufundi vélhjólamanna fyrir bættu umferðaröryggi og þar kom fram að það skorti á að haft væri samráð við þessa hópa. Ég skora á yfirvöld að bæta þar úr.
Umferðaröryggi á einnig að vera í forgangi hvað varðar löggæsluna. Ég get tekið heils hugar undir með hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur um að úr því þurfi að bæta. Hæstv. dómsmálaráðherra leggur allt of mikla áherslu á greiningardeildir og víkingasveitir á sama tíma og á þriðja tug manna farast í umferðinni og á sama tíma og fjöldi manns slasast alvarlega. Þetta eru mál sem snerta venjulegt fólk og þarna ættu áherslur yfirvalda að liggja.
Það er mín skoðun að hægt sé að ná verulegum árangri. Ég vil vara fólk við að fara fram úr sér hvað varðar að herða öll viðurlög. Viðurlög við umferðarbrotum eru mjög ströng. Hvað er hægt að hafa þau strangari en að missa lífið eða stórslasast? Það er einmitt það sem gerist ef fólk brýtur reglurnar, þverbrýtur þær og fer langt fram úr. (Gripið fram í.) Þá er það útsett fyrir þessu. (Forseti hringir.) Ég vara við þessu. En sjálfsagt er að gera þessar reglur skilvirkari.