133. löggjafarþing — 16. fundur,  19. okt. 2006.

Sinfóníuhljómsveit Íslands.

57. mál
[12:14]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er ósammála hæstv. ráðherra um að ekki sé tækifæri einmitt núna til þess að fjalla um það á breiðum grundvelli hvernig greiðsluþátttöku sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu verði hagað til framtíðar. Mér finnst einmitt að tækifærið hafi verið núna og ég átel hæstv. ráðherra fyrir að hafa ekki látið það samtal fara fram í sumar. Ráðherrann hefur haft mánuði til þess að undirbyggja þau frumvörp sem hún er að flytja fyrir Alþingi. Þetta er eitt af ágreiningsefnunum varðandi Sinfóníuhljómsveitina og varðandi þessi skil eða slit á milli Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins.

Nú er það alveg rétt sem hæstv. ráðherra bendir á að það hafa ekki verið alveg einróma sjónarmið stjórnenda í Reykjavíkurborg varðandi þátttöku Reykjavíkurborgar í fjármögnun sveitarinnar. Það er annað mál. En það sýnir hins vegar kannski að hæstv. ráðherra hefur borið ákveðna ábyrgð í þessum efnum sem mér sýnist hæstv. ráðherra ekki hafa verið að sinna. Mér finnst nauðsynlegt að þessi mál séu skoðuð í stóru samhengi og að Sinfóníuhljómsveitin og þeir sem þar starfa hafi fullvissu um það á hvern hátt sveitin verði fjármögnuð til framtíðar og hvernig tengsl hennar við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu verða. Mér finnst ábyrgðin vera hæstv. menntamálaráðherra en ekki stjórnenda í Reykjavíkurborg að sjá til þess að þetta samtal fari fram.