133. löggjafarþing — 18. fundur,  1. nóv. 2006.

flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga.

151. mál
[14:52]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek í sjálfu sér undir og það gleður mig sá góði vilji sem kom fram hjá hæstv. ráðherra um að færa verkefni og tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga þó svo ég taki undir áskoranir til hæstv. ráðherra um að taka þar skýrar af skarið hvað varðar hans eigin framtíðartónlist í þeim málum. Það skiptir máli að ráðherra dragi upp skarpa framtíðarsýn um sín eigin viðhorf í málinu burt séð frá því hvað út úr öðrum nefndarstörfum kemur. Ég þóttist greina góðan vilja og það eru tíðindi og það er fyrirboði um jákvæð skref í þá átt.

Skörun á verkefnum ríkis og sveitarfélaganna eru stór vandamál. Það hefur komið fram í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Það hefur komið fram í ýmiss konar þjónustu við aldraða og fatlaða. Reynslan frá Hornafirði og Akureyri þar sem gerður var tilraunasamningur um rekstur heilsugæslunnar fyrir nokkuð löngu síðan og er núna verið að endurnýja er, að ég held, mjög góð. Það er mjög jákvæð og farsæl reynsla. Þau sveitarfélög hafa verið vel í stakk búin til að taka við verkefnum og þess vegna skora ég á hæstv. félagsmálaráðherra að koma hreyfingu á málið, leita nýrra lausna eins og hann nefndi áðan, hefja formlegar og kraftmiklar umræður um tekjuskiptinguna þar sem sveitarfélögin fái aukna hlutdeild í veltusköttunum. Það er eina sanngirnin gagnvart sveitarfélögum og þau njóti þess í auknum mæli inn í tekjustofna sína af því að við eigum að mínu mati að hefja á næstu árum stórbrotinn flutning. Við eigum að stækka sveitarfélögin verulega og dreifa valdi frá ríki til sveitarfélaga.

Allir þekkja deiluna sem kom upp á sínum tíma út af kennarasamningunum. Nú eru þeir lausir aftur. Sveitarfélögin verða að vera í stakk búin til að leysa sín verkefni af hendi með sóma og eins og þeirra pólitíski vilji stendur til og þess vegna þarf að gæta sanngirni í tekjuskiptingunni sem allir hér inni leggja áherslu á. En ég skora aftur á hæstv. ráðherra að draga upp fyrir okkur framtíðarlandið hvað þetta varðar.