133. löggjafarþing — 20. fundur,  3. nóv. 2006.

málefni aldraðra.

190. mál
[15:13]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Vissulega var öllum ljóst sem hafa fylgst með þessu samkomulagi að leggja yrði fram frumvarp, sérstaklega hvað varðar breytingarnar á almannatryggingunum og atriði sem snúa að þeim. Ég geri mér fyllilega ljóst að þær breytingar verða ekki nema með því að breyta lögunum því að það eru að að mörgu leyti viðamiklar breytingar. Það er verið að breyta eðli bótaflokkanna.

Hér spyr ég auðvitað sérstaklega um þennan lagabálk, lögin um málefni aldraðra. Eftir því sem mér skildist á hæstv. ráðherra kemur annað frumvarp um breytingar á lögum um málefni aldraðra og þá um það sem snýr að greiðslunum úr sjóðnum. Þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Verður því komið þannig fyrir að ekki fari peningar úr sjóðnum í rekstur nema Alþingi samþykki að slíkt verði gert? Að það verði ekki áfram þannig að ríkisstjórn, hver sem hún er á hverjum tíma, geti ákveðið að taka þessa mörkuðu tekjustofna sem eiga að fara í uppbyggingu í rekstur eftir því sem þeim hentar? En það hefur eins og við vitum komið niður á uppbyggingu á hjúkrunarheimilunum.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort tekið verði á því og hvort gerð verði lagabreyting, eins og við leggjum til, ég og fleiri þingmenn Samfylkingarinnar, á þskj. 98, þar sem við leggjum til að slík breyting verði gerð einmitt á þessum greinum í lögunum um málefni aldraðra.