133. löggjafarþing — 20. fundur,  3. nóv. 2006.

málefni aldraðra.

190. mál
[15:17]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, við munum ræða þingmálið þegar það kemur fyrir þingið. Ég fer fram á það við hæstv. forseta að á sama tíma verði afgreitt til umræðu í heilbrigðis- og trygginganefnd þingmál mitt sem snýr einmitt að sömu greinum.

Vegna orða hæstv. ráðherra um að lágtekjufólk borgi ekki til Framkvæmdasjóðs aldraðra þá eru þar mjög lág tekjuviðmið sem snúa að greiðslum í sjóðinn. Ég verð að segja að fyrir fólk með innan við 100 þús. kr. til ráðstöfunar er það erfitt og miklir peningar að þurfa að borga þennan nefskatt. Það fólk er yfir þeim tekjuviðmiðunum sem þessi lög eða reglugerð gerir ráð fyrir sem að sjóðnum snýr.

Ég minni á að nefskatturinn er ósanngjarn. Hann bitnar verst á þeim sem minnst hafa og þar get ég verið sammála hv. þm. Pétri Blöndal. En við erum með þennan nefskatt. Ég hef verið á því að á meðan hann er á hann að skila sér í það sem honum er ætlað.