málefni aldraðra.
Frú forseti. Þetta mál er ekki í fyrsta skipti til umfjöllunar í sölum Alþingis. Að því var látið liggja áðan af hv. þm. Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur að enn einu sinni væri þetta mál komið í sali þingsins til umræðu. En eins og hún veit manna best þarf að taka þetta mál til umræðu í þinginu vegna þeirrar breytingar sem gera þarf á gjaldstofninum til hækkunar. Það er hið sama og þingmaðurinn þyrfti að gera ef nota ætti fjármagn úr Framkvæmdasjóði aldraðra til annars en nýbygginga þá væri hún að óska eftir því að það mál kæmi til kasta þingsins sem er ekkert óeðlilegt í sjálfu sér.
Ég minnist þess þegar þessar breytingar voru gerðar á Framkvæmdasjóði aldraðra og hluti af honum var tekinn í rekstur. Þá höfðu í tvö skipti verið tekin í notkun hjúkrunarheimili sem hófu rekstur á miðju ári án þess að nokkuð væri til á fjárlögum það ár til reksturs. Svo mikil var þörfin á hjúkrunarrýmum að menn töldu þá ekki óeðlilegt að þetta ákvæði væri tekið upp.
Hins vegar hafa tímarnir mikið verið að breytast varðandi hjúkrunarheimili og afstöðu manna til þeirra. Það er t.d. umhugsunarefni hvort við eigum að byggja hjúkrunarheimili af fullum krafti eins og óskir manna eru um í dag og vistunarmatsskrá hljóðar upp á. Ég held að við ættum að gæta okkar í að geysast ekki um of fram. Vissulega er mikil vöntun á hjúkrunarrýmum en það hefur hins vegar komið í ljós að þegar öðrum úrræðum er beitt þá er ásóknin í þau ekki jafnmikil og ætla mætti. Ég nefni sem dæmi að á Norðurlöndunum hafa verið tekin upp önnur úrlausnarefni varðandi aldraða, t.d. leiguíbúðir fyrir aldraða þar sem veitt er þjónusta eða þá að byggður er sérstakur þjónustukjarni þar sem fólk getur leitað þjónustunnar. Fyrir vikið sækir fólk ekki jafnmikið í að komast á vistheimili eða hjúkrunarheimili. Eitt dæmi um það nú er að Hrafnista og sveitarfélagið Kópavogur eru að hefja framkvæmdir í þessa veru. Ég tel að það sé af hinu góða. Það verður mjög áhugavert að sjá hvað kemur út úr því samstarfi og reynsluna af því máli. Það má segja að það byggist m.a. á þeim óskum sem aldraðir hafa lagt fram hér á landi, að fá að halda fjárforræði sínu svo lengi sem mögulegt er, greiða lyf og læknishjálp og húsaleigu. Það er að gerast á hinum Norðurlöndunum.
Við gerum okkur öll grein fyrir því að auðvitað þarf að bæta við hjúkrunarrýmum svo fljótt sem verða má. Hins vegar er ekki þar með sagt að við eigum að bæta við 500 hjúkrunarrýmum af því að 500 séu metnir á öllu landinu í brýnni eða mjög brýnni þörf fyrir að komast á hjúkrunarheimili.
Ég tel að einnig þurfi að líta á rými á hjúkrunarheimilum þar sem tveir eða jafnvel fjórir eru í herbergjum. Það þarf að vinna að því að breyta eldri hjúkrunarheimilum og vistheimilum þannig að hver einstaklingur hafi herbergi út af fyrir sig ef hinn aldraði eða ættingjar hans óska þess. Eins eru líka dæmi um að sjúkdómur sem hrjáir hinn aldraða sé með þeim hætti að hann vilji gjarnan vera með öðrum í herbergi og telji í því ákveðið öryggi.
Framkvæmdasjóður aldraðra borgar 40% af byggingarkostnaði nýrra hjúkrunarheimila. Eins og þetta hefur verið fyrir sjálfseignarstofnanir þá hafa þær átt erfitt með að bæta upp það sem á vantar. Ég nefni sem dæmi að nýlega var byggt við Hrafnistu í Reykjavík 60 rýma hjúkrunarálma sem kostaði 720 millj. kr. Framkvæmdasjóður aldraðra ætlar að greiða 40% en það kemur á nokkrum árum. Rekstrarstaða þessara hjúkrunarheimila er þannig að það er ekki mikið í afgang til að leggja fyrir þegar ákveðið er að byggja ný hjúkrunarheimili.
Ég kom fyrst og fremst upp, virðulegi forseti, til að rifja upp hinn sögulega bakgrunn þeirra breytinga sem urðu á greiðsluformi Framkvæmdasjóðs aldraðra. Það var fyrst og fremst vegna þess að hjúkrunarheimili sem voru tekin í notkun á miðju ári og jafnvel hafði ekki verið gert ráð fyrir á fjárlögum þess árs stóðu frammi fyrir miklum vanda og þess vegna urðu þessar breytingar gerðar á lögum sjóðsins.