133. löggjafarþing — 20. fundur,  3. nóv. 2006.

heilbrigðisþjónusta.

272. mál
[17:32]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get fullvissað hv. þm. Jón Bjarnason um að ég er ekki einkavæðingarsinni í heilbrigðisrekstri en ég styð einkarekstur og er búin að benda á að það eru fjölmargir sem stunda einkarekstur í heilbrigðisþjónustu með þjónustusamningum við ríkið og hafa gert í áratugi og það hefur gengið mjög vel.

Varðandi Sóltún þá er halli á rekstrinum þar og við höfum átt í viðræðum við þá sem reka stofnunina og það mál hefur ekki verið útkljáð. Þar er rekin mjög mikilvæg starfsemi og Sóltún léttir t.d. mjög mikið á Landspítalanum með því að taka 90% af öldrunarsjúklingunum þangað inn. En þetta tal um að vera alltaf að gera okkur upp einhverja einkavæðingu í heilbrigðisrekstri, ég frábið mér það, það er ekki þannig, við styðjum ekki einkavæðingu í heilbrigðisrekstri, alls ekki.