133. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2006.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.

276. mál
[19:00]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt að Reykjavíkurlistanum tókst á valdatíð sinni í Reykjavíkurborg að byggja dagvistarkerfið og leikskólakerfið mjög vel upp þannig að þar eru ekki biðlistar lengur. Og já, það er líka rétt að Reykjavíkurlistinn hafði forgöngu um það að gera áætlun um að gera leikskólann smám saman gjaldfrían en það voru einmitt Vinstri grænir, minn flokkur, sem vöktu máls á því og gerðu að stefnu sinni fyrir kosningarnar 2003. Ég óttast að miklar breytingar muni verða í leikskólamálum í Reykjavík eftir stjórnarskiptin þar sl. vor. Ég hef ekki þá trú að sú stjórn sem þar er tekin við, sá meiri hluti sem þar er tekinn við völdum, muni halda áfram þeirri uppbyggingarstefnu sem Reykjavíkurlistinn hafði á stefnuskrá sinni. Við þekkjum spor Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum og þau voru mjög slæm í Reykjavík. Við vitum líka að það er ekki sama góða ástandið alls staðar úti um land eins og er í Reykjavík.

Ég ætla ekki að svara fyrir afstöðu samfylkingarmanna hér í þessum efnum en það er vissulega rétt að hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir lýsti áðan stuðningi við 2. grein frumvarpsins. Það þýðir ekki að það sé klappkór á öllum vígstöðvum fyrir hlutum sem þessum.