opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
Herra forseti. Hæstv. iðnaðarráðherra lét að því liggja að ég hefði misskilið grein í ritinu Borgfirðingabók þar sem þetta væri, að sögn hæstv. ráðherra, ekki stefna heldur lýsing á staðreyndum. Nú er þetta staðreynd, að mati hæstv. iðnaðarráðherra væntanlega, en í þessu riti kemur fram að tæplega verði litið á byggð sem einingu ef þar búi færri en 8–12 þúsund manns. Þetta er þá lýsing á staðreyndum að mati hæstv. iðnaðarráðherra (Gripið fram í.) og það væri þá fróðlegt að fá að heyra, sérstaklega fyrir Skagfirðinga sem ná því ekki að teljast 8 þúsund og hvað þá 12 þúsund, hvað hæstv. iðnaðarráðherra á við í þessu riti. Er þetta virkilega lýsing á staðreyndum? Eiga Skagfirðingar að sætta sig við að þetta sé staðreynd og þess vegna sé mögulega verið að flytja Byggðastofnun í burtu? Hæstv. ráðherra ætti að svara þessu.
Við í Frjálslynda flokknum lítum allt öðruvísi á þetta. Við teljum að stofnun eins og Byggðastofnun eigi vel heima í Skagafirði, að það sé bara gott fyrir málaflokkinn og hann þurfi ekki að vera í einhverju ímynduðu borgríki sem Framsóknarflokkurinn virðist vera að boða hér. En það verður fróðlegt að heyra viðhorf hæstv. ráðherra.