133. löggjafarþing — 22. fundur,  7. nóv. 2006.

opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.

280. mál
[18:51]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við höfum litið svo á að það sé í rauninni augljóst hagræði og mikil samlegð og samefling í því að sameina ákveðna hluta Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Það styðst við vinnu sem áður hafði verið unnin.

Á sama hátt á hinn bóginn var augljóst hagræði og samefling í því að sameina þróunarsvið Byggðastofnunar og Impru. Þar er unnið að mjög svipuðum verkefnum, sambærilegum eða samstofna verkefnum. Með þessu ætti að geta orðið mjög árangursrík samþætting sem tryggði betur árangur og skilvirkni í þessu starfi.

Það sem er hins vegar heillandi í því efnislega er það að taka á byggðamálunum undir sjónarhorni nýsköpunar. Þá er eðlilegra að reyna að vinna það saman heldur en að vinna á einum stað hjá Iðntæknistofnun og Impru að nýsköpun og vinna síðan að því á öðrum stað hjá þróunarsviði Byggðastofnunar. Þá var því trúað að í því að sameina þær yrði efling og styrkur og aukin skilvirkni.