133. löggjafarþing — 24. fundur,  9. nóv. 2006.

ástandið í Palestínu.

[10:36]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Á miðvikudag, í gær, létu óbreyttir palestínskir borgarar lífið í árás Ísraelsmanna á norðurhluta Gaza, þar á meðal bæði konur og börn. Þessum atburðum hefur verið mótmælt og reyndar hefur forsætisráðherra Ísraels líka lýst harmi yfir þessu og boðað rannsókn. Og utanríkisráðherra Ísraels hefur enn fremur beðist afsökunar. Árásin hefur verið fordæmd víða um heim bæði meðal Araba og margra alþjóðlegra hjálparsamtaka og einnig hefur m.a. Evrópusambandið og utanríkisráðherra Bretlands mótmælt þessu athæfi. Íslensk stjórnvöld fordæma þessa árás Ísraelsmanna á Gaza en hún hitti fyrst og síðast fyrir óbreytta borgara, þar á meðal konur og börn, eins og áður sagði. Það er vandséð hvaða tilgangi hún yfir höfuð átti að þjóna og hvernig hægt er að finna henni nokkurn stað eða rök. Það vill reyndar svo til og er skyldugt að taka fram að Ísraelsstjórn hefur beðist afsökunar á þessu og boðað rannsókn á þessu athæfi.

Svo vill til að sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi mun eiga fund með utanríkisráðherra í næstu viku og þar hyggst utanríkisráðherra taka þetta mál upp við sendiherrann og koma á framfæri formlegum mótmælum. Gagnvart deilum Ísraels og Palestínumanna almennt styður Ísland sáttaumleitanir kvartettsins svonefnda, þ.e. Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Sameinuðu þjóðanna og Rússlands og vegvísinn til friðar. Þá hefur Ísland verið aðili að fjöldamörgum ályktunum Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna sem hvetja til friðar í þessum heimshluta og hvetja til þess að mannréttindi samkvæmt alþjóðasamningum séu virt á báða bóga.