ástandið í Palestínu.
Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni að íslensk stjórnvöld, ríkisstjórnin, hyggist mótmæla með formlegum hætti þessum hroðalegu verkum sem Ísraelsmenn hafa framið. Það sem við gerum í Frjálslynda flokknum er að senda mjög skýr skilaboð til Ísraelsmanna sem taka engum rökum. Með því að neita því að hitta sendiherrann segjum við heilmikið og þá erum við að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri.
Norski rithöfundurinn og heimspekingurinn Jostein Gaarder skrifaði grein í ágúst þegar hryllingurinn stóð yfir í Líbanon. Ég þýddi þessa grein yfir á íslensku og birti hana á heimasíðu minni. Mig langar til að lesa aðeins upp úr henni, með leyfi forseta:
„Það eru takmörk fyrir þolinmæði okkar, og það eru takmörk fyrir umburðarlyndi okkar. Við trúum ekki á guðdómleg loforð sem rök fyrir hernámi og aðskilnaðarstefnu. Við höfum lagt miðaldirnar að baki. Við hlæjum þvinguðum hlátri að þeim sem enn trúa því að guð gróðursins, dýranna og vetrarbrautanna hafi valið sér ákveðna þjóð sem sitt uppáhald og gefið henni skemmtilegar steintöflur, brennandi runna og license to kill.
Við köllum barnamorðingja barnamorðingja og viðurkennum aldrei að slíkir hafi neitt guðdómlegt eða sögulegt umboð sem getur afsakað níðingsverk þeirra. Við segjum aðeins: Skömm sé allri aðskilnaðarstefnu, skömm sé þjóðernishreinsun, skömm sé öllum hryðjuverkum beint gegn almennum borgurum, hvort heldur þau eru framin af Hamas, Hizbollah eða Ísraelsríki!“
Virðulegi forseti. Þetta verður að segja við Ísraelsmenn, koma þessum skilaboðum til þeirra með skýrum hætti, hvort heldur við gerum það með því að hitta þá augliti til auglitis og segja það við þá eða við gerum það með táknrænum hætti með því að neita að eiga við þá samskipti. Það er vel athugandi að íhuga hvort við ættum ekki að gera eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon lagði til í ræðu sinni áðan, að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Íslendingar vilja láta taka mark á sér á alþjóðavettvangi. Íslendingar vilja fá sæti í öryggisráðinu. Þá verða Íslendingar líka að sýna kjark og þor til að taka sjálfstæðar ákvarðanir.