skýrsla umboðsmanns Alþingis 2005.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þá merku skýrslu sem er hér til umræðu. Tel ég að hún sé talsvert afrek hjá ekki fjölmennari stofnun. Þar fer fram mjög gott og þarft starf, að hafa eftirlit með stjórnsýslunni í landinu.
Ég ætla að rifja upp hugmynd sem hv. þm. Ögmundur Jónasson kom með inn í umræðuna í fyrra, að þetta fyrirkomulag á umræðunni hér sé kannski ekki mjög hentugt. Við erum að ræða skýrslu og skýrsluhöfundar eru ekki til andsvara. Það væri miklum mun heppilegra ef þessi umfjöllun um skýrsluna færi fram með þeim hætti að skýrsluhöfundar væru til andsvara. Eðli málsins samkvæmt er það ekki í boði hér sem leiðir þá hugann að því hvort þessi umræða eigi ekki að fara fram í þingnefndinni, allsherjarnefndinni, og þá fyrir opnum tjöldum.
Ég get fullyrt að ef það væri gert með þeim hætti að það væri einfaldlega myndavél á allsherjarnefndarfundum og gestir væru þar til svara væri umræðan miklu markvissari en hún er núna. Þá væri hægt að spyrja út í ákveðin efnisatriði og almenningur gæti fylgst með. Vissulega fór fram umræða á fundi allsherjarnefndar en hún hefði getað orðið, og hefði orðið, markvissari ef þetta væri með formlegri hætti og hún fyrir opnum tjöldum. Eflaust hefði mæting á fundinn líka verið betri en hún var.
Það hefur orðið örlítil fækkun mála. Það er góðs viti en samt segir það ekki alla söguna. Það sem skýrslan ber einnig með sér er að umboðsmaður hefur undan, hann afgreiðir fleiri mál en berast inn á borð til hans. Í rauninni væri líka annað algjörlega ólíðandi, þ.e. ef stofnun sem á að fylgja því eftir að aðrir sinni málsmeðferð sinni hefði sjálf ekki undan því að sinna þeim málum sem berast inn á borð hjá henni.
Það eru líka önnur merki um að hlutirnir séu að færast í betra lag, við höfum ekki eins alvarleg mál nú og voru inni á borði umboðsmanns fyrir árið 2004. Þá á ég auðvitað við það þegar mjög vel rökstuddar kvartanir bárust um það hvernig hæstv. dómsmálaráðherra veitti embætti hæstaréttardómara. Þessi mál eru ekki nú og ekki eins alvarleg.
Samt sem áður er fjöldi kvartana. Nú eru 46 kvartanir en þær voru 55 árið 2004. Það er mín skoðun að við sjáum einungis lítinn hluta af þeim málum sem ættu heima inni á borði umboðsmanns hvað varðar kvartanir. Það er víða mikill seinagangur í stjórnsýslunni. Stundum virðist seinagangur vera meðvituð afgreiðsla mála.
Það er eins og að ef erfið mál koma upp sé einhvern veginn látið undir höfuð leggjast að svara þeim. Það urðum við í Frjálslynda flokknum varir við þegar við spurðum spurninga um t.d. fiskeldisstöð norður í landi sem lyktaði af pólitískri spillingu. Þá fengust engin svör. Það var ekki einungis að málið lyktaði af spillingu, heldur voru þar hreinar og klárar ásakanir hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar varðandi það að fyrrum forstjóri Byggðastofnunar hefði í rauninni misfarið með vald sitt og jafnvel tekið til sín hlutafé. Þetta voru mjög alvarlegar ásakanir um lögbrot. Þegar við reyndum að beina sjónum lögreglunnar að málinu fengust engin svör. Það voru í rauninni tafir á afgreiðslunni og þetta virtist vera meðvitað.
Nefna má fleiri dæmi sem maður þekkir náið, t.d. þegar til stóð að fá upplýsingar frá forsætisráðuneytinu um kostnaðinn við stólaskiptin sem urðu hér í sumar. Lengi vel bólaði ekkert á svörum. Upplýsingaþjónusta Alþingis fékk engin svör frá forsætisráðuneytinu þrátt fyrir að hún gengi ítrekað eftir þeim. Það var ekki fyrr en mörgum mánuðum seinna að svörin fengust um kostnaðinn af þessari ráðstöfun eða björgunaraðgerðum fyrir Framsóknarflokkinn. Allir vita náttúrlega að þessi stólaskipti höfðu ekkert með það að gera að koma á betri stjórn fyrir landið, heldur var þetta einungis björgunaraðgerð fyrir Framsóknarflokkinn.
Enn fleiri mál má nefna, svo sem þegar pólitísk stjórnvöld neita að veita upplýsingar, neita að reikna ákveðna hluti út. Það höfðum við fyrir augunum á nýliðnum árum þegar ég beindi fyrirspurn til núverandi forsætisráðherra, sem þá var fjármálaráðherra, um það hver misskiptingin á Íslandi yrði þegar skattbreytingar ríkisstjórnarinnar yrðu komnar til framkvæmda eins og ríkisstjórnin hafði boðað. Þá var okkur neitað um þær upplýsingar. En nú höfum við fengið svör, og svörin eru þau að misskiptingin hefur aukist. Það virðist einfaldlega vera meðvituð afgreiðsla að tefja mál og neita að veita upplýsingar. Það er alvarlegt.
Það er fleira sem ber að nefna um að tafir eru í rauninni meiri en gefið er til kynna í þessari skýrslu. Ég sé að einungis tvö samkeppnismál eru skráð hér. Ef við skoðum svar sem hæstv. viðskiptaráðherra gaf í vor um afgreiðslutíma hjá Samkeppniseftirlitinu er hann gríðarlega langur. Þegar Samkeppnisstofnun var lögð niður biðu 80 mál en þegar Samkeppniseftirlitið hafði starfað í talsverðan tíma og fyrirspurn var beint til viðskiptaráðherra hafði málum sem biðu fjölgað í 100. Sú stofnun sem var sett á fót til að auka málshraðann hefur alls ekki skilað árangri. Þetta er eitt af því sem verður að skoða þegar við horfum upp á að aðgerðir stjórnvalda sem var ætlað að auka málshraðann virðist draga úr honum.
Það er líka vert að spyrja þeirrar spurningar og velta henni upp hvers vegna ekki komi fleiri mál inn á borð umboðsmanns Alþingis frá fyrirtækjum. Hvers vegna koma ekki erindi frá fyrirtækjum sem sannarlega hafa beðið lengi eftir afgreiðslu mála? Nefnd hefur verið sú skýring sem er vert að fara rækilega í gegnum að fyrirtæki og lögaðilar veigri sér við að fara þangað með mál vegna þess ef menn eru með múður getur það einfaldlega komið niður á endanlegum úrskurði. Þetta þarf að hafa í huga og við þurfum að ræða þessa hluti opinskátt.
Ég get tekið undir þá gagnrýni sem kom hér fram, m.a. hjá hv. þm. Guðjóni Ólafi Jónssyni og Bjarna Benediktssyni, að það þarf virkilega að fara í gegnum þessar stjórnsýslunefndir. Þetta er orðinn mikill frumskógur nefnda. Það kom fram í úttekt sem var gerð að þær væru orðnar 58. En vel á minnst, árið 2003 lagði sá sem hér stendur fram fyrirspurn, ásamt hv. þm. Atla Gíslasyni, um kostnaðinn af þessum nefndum. Þetta er ekki ódýrt. Það er á fjórða hundrað millj. kr. sem þessar nefndir kostuðu hið opinbera árið 2003. Þá voru einungis 42 nefndir inni í þessari tölu þannig að það er full nauðsyn á því að fara rækilega í gegnum þetta til að gera stjórnsýsluna einfaldari og skilvirkari.
Við höfum hér stundum alþjóðlegar kannanir þar sem við fáum ítrekað hæstu einkunn. Maður veltir fyrir sér hvernig menn komast að þeirri niðurstöðu að við fáum hæstu einkunn, einkunn um minnstu spillinguna og skilvirkustu stjórnsýsluna. Það gefur augaleið að þetta á ekki algerlega við rök að styðjast og við getum ekki tekið svona einkunnagjöf sem kemur utan úr heimi sem einhverja sönnun þess að hlutirnir séu í lagi. Við eigum einfaldlega að horfa á skýrslu umboðsmanns Alþingis og ekki hvað síst þessa athugun á stjórnsýslu- og úrskurðarnefndum til vitnis um að hér eru ákveðnar brotalamir sem þarf að lagfæra.
Það þarf að lagfæra þessar úrskurðarnefndir. Það kemur m.a. fram að helst er hætt við því að brotalamirnar séu hjá nefndum þar sem starfsemi er kannski ekki regluleg. Fólk kemur utan úr bæ. Það er mjög mikilvægt að koma fastari umgjörð um þessar nefndir. Ég hef viðrað þá hugmynd að búinn verði til sérstakur stjórnsýsludómstóll til að koma þessu í fastari skorður, eða þá má líka einfaldlega styðja þá hugmynd og þá tillögu að færa meira af þessu starfi til dómstóla landsins. Mér finnst þetta vera mjög nauðsynleg umræða.
Það kom fram á fundi umboðsmanns með allsherjarnefnd að Færeyingar hafa farið þá leið að bæta umgjörð slíkra nefnda. Þar er ein skrifstofa sem tekur við erindum. Mér finnst að það mætti skoða þeirra leið í þessum efnum en einnig þá leið að færa starf nefndanna til dómstólanna. Í dómstólunum er formföst og gagnsæ málsmeðferð sem á því miður ekki alltaf við um þessar stjórnsýslunefndir. Einnig er afgreiðslutíminn sem hefur verið að lengjast til vitnis um það að við þurfum að gera betur.
Ég vil nota síðustu orð mín í þessari ræðu til að þakka fyrir þessa góðu skýrslu og ég vona að hún verði stjórnsýslunni í landinu það gagn að hún verði sú skilvirkasta í Evrópu.