133. löggjafarþing — 24. fundur,  9. nóv. 2006.

starfsskýrsla Ríkisendurskoðunar 2005.

[15:11]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér þykir leitt að hv. þm. Katrín Júlíusdóttir skuli koma upp og búa til ágreining. Þessa umræðu um framúrkeyrslu einstakra stofnana tók ég sérstaklega upp við 1. umr. fjárlaga. Ég hélt að alger samstaða væri um það innan fjárlaganefndar að stefna að því marki að sem flestar og nær allar ríkisstofnanir yrðu innan fjárheimilda, enda kveða lög á um það.

Hins vegar hefur þróunin verið í rétta átt. Árið 2005 fóru 144 stofnanir umfram 4% af fjárheimildum. Fyrstu sex mánuði þessa árs eru þær 106. Þar er um 40 fjárlagaliða fækkun að ræða þannig að við stefnum í rétta átt hvað það varðar.

Fjárlaganefnd er í ágætu samstarfi með því að kalla til einstakar stofnanir og fara yfir það hvort fjárlagagrunnur viðkomandi stofnana sé réttur. Ég hef talið að ágætissamkomulag væri um þau vinnubrögð og að við tölum á sömu nótum, ég og hv. þm. Katrín Júlíusdóttir. Þótt hv. þingmaður sé í stjórnarandstöðu og vilji láta kné fylgja kviði þá erum við sammála í þessum málum. Aðalatriðið er að samstarf nefndarinnar við ríkisendurskoðanda hefur verið mjög gott og okkur miðar í rétta átt í fjárlagaferlinu. Fjárlögin eru nú yfirleitt afgreidd á réttum tíma, gerð þeirra hefur ekki dregist fram yfir áramót eins og áður tíðkaðist. Við höfum tekið miklum framförum og þar eiga bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar sinn þátt. Ég tel að við eigum að halda áfram að bæta fjárlagagerðina enda er það mjög mikilvægt fyrir einstakar stofnanir upp á áætlanagerð komandi ára.