133. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2006.

Náttúruminjasafn Íslands.

281. mál
[18:00]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki viss um að ég hafi skilið hæstv. ráðherrann rétt. Ef ráðherra á við það hvort ég sé sammála því að þessar rúmlega tvær milljónir gripa í vísindasöfnum Náttúrufræðistofnunar Íslands fari inn í það sem ég óttast því miður að sé pappírs- eða skúffufyrirbæri er ég ekki tilbúin til þess. Það verður bara að segjast eins og er.

Ég held að það væri algert óráð að taka út úr lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands þá skyldu að aðstoða við uppsetningu náttúrusýninga á landinu. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur af veikum burðum á undanförnum áratug, frá 1992, frá því að lög um stofnunina voru sett, leitast við að aðstoða, eins og þarna segir einmitt, við uppsetningu náttúrusýninga.

Ég vil nefna Hvalamiðstöðina á Húsavík sem starfsmenn stofnunarinnar komu að því að setja upp. Eins vil ég nefna Veiðisafnið á Stokkseyri. Það er dapurlegt að stofnunin skuli ekki geta sinnt þessu hlutverki sínu betur. Hæstv. ráðherra, það er enginn að sinna nákvæmlega þessu. Það hefur enginn verið að sinna þessu.

Þetta ákvæði sem var sett í lögin 1992 sem átti að fría Náttúrufræðistofnun frá því að reka safnið eiginlega velti því verkefni yfir á sveitarfélögin. (Menntmrh.: Á Náttúrufræðistofnun að hafa safnahlutverk?) Náttúrufræðistofnun hefur safnahlutverk, já, hæstv. ráðherra.