133. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2006.

Náttúruminjasafn Íslands.

281. mál
[18:02]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Við ræðum nú hér öðru sinni á þessu sama ári frumvarp til laga um Náttúruminjasafn Íslands. Eins og hér hefur komið fram er um viðamikið mál að ræða og þingmenn hafa á því mikinn áhuga. Ég undirstrika hér, eins og ég gerði reyndar í hið fyrra sinni, að ég tel að hér sé um langþráð mál að ræða. Eins og hv. þm. Álfheiður Ingadóttur vék að eru 117 ár liðin frá því að Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað beinlínis til að koma á laggirnar safni af því tagi sem vonandi verður afsprengi þessa frumvarps hér þó svo að allir geri sér ljósa grein fyrir því að safnið sem við fáum vonandi í framhaldi af þessu frumvarpi verður svo nútímalegt og svo viðamikið að náttúrufræðingarnir sem stofnuðu til safnsins fyrir 117 árum hefðu ekki í sínum villtustu draumum, vona ég, getað séð hvers konar safn við hyggjumst reisa hér á Íslandi á 21. öldinni.

Hins vegar vil ég segja að auðvitað er ekki vansalaust hvernig hefur gengið. Það er sárgrætilegt að þurfa að horfa upp á þessa sögu, og nú hef ég kynnt mér hana lítillega, hvernig maður hefur gengið undir manns hönd til að auka veg þessa máls og efla framgang þess. Lítið hefur gengið. Allan þennan tíma hafa virtir náttúruvísindamenn verið að störfum við að viða að sér munum sem gætu verið hluti af stofni svona safns. Hér hefur komið fram hversu viðamikið það safn þó er sem er í eigu og umsjá Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ég held að það sé alveg einboðið að þegar loksins verður af stofnun þessa nýja höfuðsafns komi það til með að fá glæsilegan heimanmund, bæði í faglegri þekkingu þeirra einstaklinga sem hingað til hafa unnið að þessum málum og sömuleiðis í þeim gripum sem eru til staðar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Hitt verður svo auðvitað að gaumgæfa með hvaða hætti Náttúrufræðistofnun Íslands tengist þessu safni. Það verður að fara vel ofan í saumana á því. Það verður ekki gert öðruvísi en að allir séu með í ráðum. Þess vegna finnst mér mjög mikilvægt að undirstrika hér enn að umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands hljóta að þurfa að vera hægri hendur hæstv. menntamálaráðherra í þeirri vinnu sem nú er fram undan. Menntamálanefnd Alþingis verður auðvitað ein af þeim hægri höndum líka.

Við fengum í menntamálanefndinni nokkuð margar umsagnir um þetta frumvarp síðasta vor. Þeirra hefur svo sem ekki verið getið neitt hér í ræðum þeirra þingmanna sem á undan mér hafa talað en þær gefa alveg til kynna hvaða atriði það eru sem koma til með að verða aðalumfjöllunarefni nefndarinnar.

Í fyrsta lagi er það þetta með rannsóknaþáttinn. Á hvern hátt skarast rannsóknaþáttur Náttúrufræðistofnunar Íslands og þessa safns? Hvernig kemur samstarfi þessara tveggja stofnana til með að verða háttað? Sömuleiðis, hvaða stofnanir koma til með að eiga beina aðild að safninu, sem rannsóknastofnanir og bakhjarlar þess? Hæstv. ráðherra hefur nefnt hérna Hafrannsóknastofnun og Veðurstofu Íslands. Aðrar stofnanir sem hafa verið nefndar í umsögnum umsagnaraðila eru Umhverfisstofnun Íslands og Veiðimálastofnun sem sendi inn umsögn. Orkustofnun er nefnd. Það mætti jafnvel nefna fleiri vísindastofnanir sem þurfa að eiga greiðan aðgang að þessu væntanlega safni og hafa við það bein og óbein tengsl.

Aðrir þættir sem koma til með að taka pláss í vinnu nefndarinnar eru auðvitað hlutir eins og staðsetning. Ég veit ekki hvort maður má brosa en það koma nokkuð margar umsagnir til nefndarinnar sem varða ekkert annað en staðsetningu safnsins. Við vitum það sem höfum vasast í pólitík á síðustu árum að þegar ný ríkisstofnun lítur dagsins ljós eru auðvitað ansi margir sem óska þess að hún verði stofnuð í þeirra umdæmi.

En á hitt vil ég síðan minna, og það er ekki bara af því að ég er þingmaður Reykvíkinga, að hið íslenska náttúrufræðifélag gerði ráð fyrir því, fyrir 117 árum, þegar gjöfin var afhent íslenska ríkinu og til þessa alls var stofnað, að safnið yrði reist í höfuðstað Íslendinga. Ég tel alveg sömu forsendur vera til staðar í málinu nú eins og þá. Hér er um að ræða eitt af höfuðsöfnunum sem að sjálfsögðu á að rísa í höfuðstað Íslendinga með mjög góðar og öflugar tengingar út í öll byggðarlög þessa lands.

Auðvitað vitum við líka að það eru glæsileg einkasöfn og náttúruminjasöfn sem hefur verið komið á laggirnar víða úti um land. Eitt af hlutverkum svona stórs höfuðsafns á sviði náttúruvísinda væri auðvitað að afla upplýsinga og kortleggja þau söfn sem eru til staðar úti á landsbyggðinni og mynda við þau tengsl. Ég lít á þetta allt saman sem gríðarmikið tækifæri fyrir okkur til að efla safnastarfsemi á sviði náttúruvísinda úti um allt land þar sem hjartað, sem dælir blóðinu út í líkamann, yrði svo staðsett í höfuðstað Íslendinga.

Einn þeirra aðila sem sendi okkur í menntamálanefndinni umsögn með málinu var að sjálfsögðu Hið íslenska náttúrufræðifélag. Sú umsögn er efnismest af þeim sem okkur barst. Meðal þess sem náttúrufræðifélagið sendi okkur var skýrsla um Hið íslenska náttúrufræðifélag sem gefin var út af Ísafoldarprentsmiðju árið 1951 þar sem rakið er hvernig Náttúrugripasafnið er til komið og hvernig náttúrufræðifélagið hefur séð þetta allt fyrir sér í árdaga. Er í þessari skýrslu verulegur fróðleikur.

Svo fylgir umsögn Hins íslenska náttúrufræðifélags einnig ályktun frá félaginu um Náttúruminjasafn Íslands sem ég tel ástæðu til að gefa gaum hér. Sú ályktun var gerð á aðalfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags sem haldinn var 25. febrúar 2006 í Kópavogi. Þar ítrekar félagið ályktanir fyrri aðalfunda til margra ára um málefni Náttúruminjasafns, höfuðsafns íslensku þjóðarinnar í náttúrufræðum sem félagið hefur barist fyrir í meira en heila öld. Félagið hvetur menntamálaráðherra og aðra hlutaðeigandi aðila, og þar með talda auðvitað menntamálanefnd, til að beita sér af fullum þunga fyrir því að ráðist verði hið fyrsta í byggingu veglegs og nýstárlegs sýningar- og kennslusalar í náttúrufræðum.

Í þessari ályktun leggur félagið áherslu á að safnið hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og starfi í tengslum við Náttúrufræðistofnun Íslands. Það getur ekki annað verið en að við sem löggjafinn í þessu landi lítum til vilja Hins íslenska náttúrufræðifélags í þessum efnum. Hann er alveg ljós. Hann lá fyrir fyrir 117 árum og hann er ítrekaður með ályktun náttúrufræðifélagsins frá því í febrúar á þessu ári.

Svo fagnar félagið auðvitað hreyfingunni, að það skuli vera komin hreyfing á málið, eins og við höfum gert í þessum sal, þingmenn kjörin á Alþingi fyrir hönd þjóðarinnar, og lýkur síðan ályktun sinni með því að segja, og þá vil ég vitna beint til ályktunarinnar, með leyfi forseta:

„Félagið harmar hins vegar að hafa ekki verið haft með í ráðum við smíði frumvarpsins og telur eðlilegt, í ljósi samofinnar sögu og tengsla félagsins við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands, að félagið fái frumvarpið til umfjöllunar áður en það verður lagt fyrir Alþingi. Hið íslenska náttúrufræðifélag væntir góðs samstarfs við ráðuneyti mennta- og umhverfismála um framtíðarmálefni Náttúruminjasafns Íslands.“

Þetta finnst mér mikilvægt að gera hér að umtalsefni af því að það sýnir okkur hvað það er mikilvægt að hæstv. menntamálaráðherra hafi opið inn til sín í þessum efnum og hleypi öllum að þessu borði. Það hefur ekki verið gert að mínu mati og það heyrir upp á menntamálanefnd Alþingis að sjá til þess að nú komist allir þessir aðilar að og geti komið með sínar góðu ábendingar.

Ég spái því, virðulegi forseti, að talsverðar breytingar eigi eftir að verða á þessu frumvarpi áður en það kemur til 2. umr. Ég er t.d. algerlega sannfærð um að menntamálanefnd vilji móta stefnu þessa safns á mun ítarlegri hátt en gert er í þessu frumvarpi þar sem hæstv. menntamálaráðherra leyfir sér að tala um rammalöggjöf, og svo eigi einhver sterkur forstöðumaður, einhver sterkur foringi að koma hér, gefa línuna og ráða öllu saman. Þetta er auðvitað ekki alveg boðlegt.

Við vitum það sem höfum starfað í menntamálanefndinni undanfarin ár og settum á síðasta ári vönduð lög að mínu mati um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að þetta var eitt af aðalatriðunum, þ.e. að móta innviði stofnunarinnar. Það var reynt eftir fremsta megni og við náðum talsvert langt í þeim efnum í störfum menntamálanefndarinnar þó að sum okkar hefðu ef til vill viljað fara lengra í þeim efnum.

Ég spái því að svipuð deigla eigi eftir að verða um þetta frumvarp í menntamálanefndinni sem á endanum kemur, vonandi, til með að skila betri framlegð hingað inn í þennan sal til 2. umr. Ég trúi því og treysti.

Ég vil bara taka viljann fyrir verkið og segja að ég er afar glöð yfir því að þetta skuli koma fram. Ég er glöð yfir því að sjá hversu góðar ábendingar við fáum í þeim umsögnum sem eru til staðar. Ég treysti því að menntamálanefnd taki þær allar til gaumgæfilegrar skoðunar og komi á endanum til með að bæta talsverðu við frumvarpið.

Ég tel svo sem ekki efni til þess hér, eða stað eða stund, að fara neitt í smáatriði þessara umsagna. Eins og ég segi koma þær til með að verða skoðaðar allar saman þegar málið verður tekið fyrir hjá menntamálanefndinni.

Eins og hér hefur komið fram er ekki nægilegur sómi að því að fá þessa umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Hún er afar harðorð og ég tel að það hefði verið hægur vandi hjá hæstv. ráðherra að standa betur að málum en raun ber vitni. En eins og ég segi, ég held að við þurfum ekki að eyða neitt löngum tíma hér í að setja út á það. Við sjáum bara að verkefnið í menntamálanefndinni er ærið. Ég geri ráð fyrir því að þar verði skoðuð saga þessara mála og bláa skýrslan sem hv. þm. Álfheiður Ingadóttir nefndi. Sú skýrsla er afar athyglisverð í alla staði og verður örugglega tekin til skoðunar líka í menntamálanefndinni því að þar er að finna gríðarlegan fróðleik um forsögu þessa máls, um undirbyggingu þess samkomulags sem gert var milli Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins, sem auðvitað er þyngra en tárum taki að skyldi hafa verið rofið. Við áttum á þessum fyrstu árum 10. áratugarins möguleika á að setja málið á fullan skrið og koma safninu í höfn en því miður bárum við ekki gæfu til þess.

Ég kem til með að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að ríkið geti rekið af sér slyðruorðið og nái nú saman um þetta mál, helst á þessi þingi. Þá verður það þó að vera í vandaðri búningi en frumvarpið er eins og það liggur fyrir núna. Ég tel að við höfum full efni til þess að vera bjartsýn og vænta mikils af starfi nefndarinnar sem fram undan er.