133. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2006.

Náttúruminjasafn Íslands.

281. mál
[18:16]
Hlusta

Hjálmar Árnason (F):

Virðulegur forseti. Það þarf í sjálfu sér ekki að bæta miklu við þá ágætu umræðu sem hér hefur farið fram. Ég get tekið undir þau sjónarmið að metnaðarleysi okkar sem þjóðar í yfir eina öld er algert. Það eru líklega fáar þjóðir sem eru jafnháðar náttúrunni og við Íslendingar, þ.e. hvernig við höfum umgengist og nýtt náttúruna, það er það sem hefur haldið lífi í okkur sem þjóð. Við höfum verið algerlega háð duttlungum náttúrunnar og þess vegna hafa náttúruvísindi í rauninni verið undirstaðan að tilveru okkar. Einmitt í því ljósi er það skammarlegt metnaðarleysi okkar sem þjóðar að standa í þeim sporum sem við stöndum núna, að hafa ekki komið upp fyrir mörgum árum alvöruaðstöðu fyrir náttúruvísindin. Eins og hér hefur komið fram eru 117 ár frá því að Hið íslenska náttúrufræðifélag setti sér það metnaðarfulla markmið en okkur hefur enn ekki tekist það þó að einhver hænuskref hafi verið stigin í þá átt. Þau hænuskref eru e.t.v. kjarninn í þeirri aðstöðu sem er við Hlemm og sú aðstaða var í rauninni færð þjóðinni sem gjöf en er á engan hátt boðleg, skapar hættu fyrir fólk, gesti og starfsfólk, að ég tali ekki um munina eins og dæmin sanna.

Það er einmitt mjög sláandi að ganga um það húsnæði sem Náttúrufræðistofnun ræður yfir í dag með sínar tvær milljónir safngripa, einstakra og stórmerkra, og vegna þessa aðstöðuleysis upplifum við slys, vísindaleg og menningarleg slys eins og við höfum fylgst með í fréttum að undanförnu. Við sjáum í kjallaraholum á Hlemmi hvernig verðmætir náttúrugripir, dýrgripir liggja nánast undir skemmdum í leku húsnæði og fyrir utan það í hjöllum hér og þar um bæinn. Þetta er auðvitað skammarlegt fyrir okkur sem þjóð og þess vegna er ánægjulegt að nú skuli stigið það skref að flytja frumvarp sem felur það í sér að setja ramma utan um náttúruminjasafn.

Ég er í rauninni dálítið undrandi á þeim móttökum sem frumvarpið fær hjá nokkrum hv. stjórnarandstæðingum. Ég tel að við eigum einmitt að fagna því að hæstv. ráðherra skuli flytja frumvarpið með þeim yfirlýsingum sem fylgja framsögu hæstv. ráðherra um að hér sé verið að stíga fyrsta skrefið í áttina að því að koma upp húsi með metnaðarfullum hætti.

Hér hefur verið veifað mjög merkilegri skýrslu frá 1991 og skal á engan hátt gert lítið úr henni og hefði betur verið að henni hefði verið fylgt eftir á sínum tíma en svo var ekki. En við getum auðvitað ekki stokkið til og framkvæmt þær hugmyndir hráar sem þar koma fram því að skýrslan var gefin út árið 1991 og við erum hér, þótt skömm sé frá að segja, árið 2006 án þess að nokkuð hafi hreyfst. Að sjálfsögðu þarf að fara yfir þær forsendur og þær niðurstöður sem eru í þessari skýrslu en eins og hæstv. ráðherra benti á hafa orðið miklar breytingar í safnaheiminum á síðustu árum og sérstaklega síðasta áratuginn og þess vegna er mikilvægt að fara yfir þessar áherslur og aðlaga þá vinnu og þær hugmyndir sem þegar eru komnar fram að þessari vinnu. Einhver þarf að leiða slíkt starf og hvað er eðlilegra en að forstöðumaður slíks safns, eins og gert er ráð fyrir að sé ráðinn samkvæmt frumvarpinu, leiði slíka vinnu? Mér finnst alveg ástæðulaust að gera lítið úr þeim yfirlýsingum og því frumvarpi sem hér kemur fram og skamma hæstv. menntamálaráðherra. Mér finnst það hreinlega rangt því að hér er verið að stíga mikilvæg og metnaðarfull skref í því að koma upp myndarlegu húsi sem við hefðum átt að gera fyrir mörgum áratugum síðan.

Það er rétt að vekja athygli á því að samkvæmt bláu skýrslunni frá 1991 var gert ráð fyrir metnaðarfullu náttúrufræðihúsi, og ég tek enn undir að það er skammarlegt fyrir okkur sem þjóð að hafa ekki í samstarfi ríkis, borgar og háskóla fylgt eftir þeim hugmyndum sem voru á þeim tíma gagnlegar, en e.t.v. hafa forsendur breyst og hafa alveg örugglega breyst síðan. Þar er gert er ráð fyrir einu náttúrufræðihúsi samkvæmt þeirri hugmyndafræði að Náttúrufræðistofnun sé eins og hún er í dag, þ.e. með vísindahlutann og sýningarhlutann, en stóra breytingin í tengslum við frumvarpið sem hér er til umræðu felur einmitt í sér að skilja þarna á milli, að sýningarhlutinn fari undir menntamálaráðuneytið en vísindahlutinn verði á ábyrgð umhverfisráðuneytisins.

Ég vek líka athygli á og fagna því að undirstaðan, rauði þráðurinn, að sýningarhaldinu er að sjálfsögðu vísindastarfsemin og náið samspil á milli sýningarþáttarins og vísindastarfseminnar, því að lifandi náttúruminjasafn mun aldrei verða til staðar öðruvísi en að það byggi á góðu og nánu samstarfi við vísindamenn, ekki bara vísindamenn hjá Náttúrufræðistofnun heldur aðra vísindamenn sem véla um náttúruna eins og hjá Orkustofnun og Hafrannsóknastofnun. Náttúruvísindin eru ekki aðeins bundin við eina stofnun, ég lít svo á að það náttúruminjasafn sem hér er verið að leggja drög að og stíga fyrstu skrefin í áttina að metnaðarfullu starfi eigi að hafa náið samráð við Náttúrufræðistofnun Íslands og aðrar vísindastofnanir á sviði náttúrufræða á Íslandi og þær eru nokkrar og metnaðarfullar. Með þessu er auðvitað verið að taka upp breytta stefnu, taka sýningarþáttinn frá því sem hann er í dag og færa hann, þessar tvær milljónir gripa, hversu sýningarhæfir sem þeir nú eru, undir menntamálaráðuneytið. Í stað þess að gera lítið úr þessu frumvarpi tel ég að við ættum að taka því fagnandi og sjá að við erum að leggja upp í gæfuríka vegferð.

Hvar á safnið að vera? Sjálfsagt munu margir staðir verða kallaðir til þess. Ég vek athygli á að ríkinu hefur áskotnast töluvert húsnæði nýlega, bara hér í hlaðvarpanum við höfuðborgina, nokkur þúsund eða tugir þúsunda fermetra jafnvel, í glæsilegu húsnæði í eigu ríkisins staðsettu á Keflavíkurflugvelli og það gæti hugsanlega verið hægt að stíga nokkuð hratt í átt til Keflavíkurflugvallar með tvær milljónir safngripa í stað þess að byggja hér fyrir líklega 2–3 milljarða, ég ímynda mér að metnaðarfullt sýningarhúsnæði mundi kosta það. En ég vil draga það fram í þessari umræðu að við eigum ekkert að takmarka okkur við 101 Reykjavík eða Vatnsmýrina. Við eigum að skoða nágrenni okkar og finna metnaðarfulla, faglega en jafnframt hugsanlega ódýrustu leiðina fyrir ríkisvaldið. En umfram allt annað tel ég að við ættum að fagna því að nú skuli eiga að stíga þessi skref. Ég hygg að það sé ekki ágreiningur um að þetta skuli gert heldur sé þvert á móti þverpólitísk samstaða um að koma á metnaðarfullu náttúruminjasafni sem íslensku þjóðinni hefur ekki tekist í yfir eina öld. Við skulum vona að við sjáum eitthvað gerast á allra næstu árum en fljótvirkasta leiðin er að sjálfsögðu að skoða eitthvað af því myndarlega húsnæði sem ríkið á núna og stendur ónotað á Keflavíkurflugvelli.