133. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2006.

upplýsingar og samráð í fyrirtækjum.

231. mál
[19:23]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi fyrri spurninguna um fjölda fyrirtækjanna sem þetta nær til þá kom það fram í andsvari mínu fyrr í þessari umræðu. Ég biðst aftur afsökunar á því að ég er ekki með þessar tölur. En að sjálfsögðu mun ég afla þeirra og koma til félagsmálanefndar þannig að þær upplýsingar liggi fyrir.

Hvað varðar afstöðu aðila vinnumarkaðarins til þessa máls þá náðu þeir ekki saman um málið þannig að ég geri ekki ráð fyrir fullri sátt aðila vinnumarkaðarins um málið. Engu að síður er stigið mikilvægt skref sem er til bóta og jákvætt.